Vara við svikapóstum sem sendir hafa verið í nafni DHL og Póstsins Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 9. desember 2020 19:04 Valitor varar við svikapóstum í nafni þekktra fyrirtækja. NORDICPHOTOS/GETTY Valitor varar við svikahröppum sem reynt hafa að blekkja korthafa til að staðfesta kort í Apple Pay-snjallsímalausninni eða gefa upp SMS-öryggiskóða. Þannig hafa „sviksamlegir tölvupóstar“ til að mynda verið sendir út í nafni þekktra fyrirtækja á borð við DHL og Póstinn að því er fram kemur í tilkynningu frá Valitor.
Það að óprúttnir aðilar kjósi að senda út slíka tölvupósta í nafni þessara fyrirtækja er sennilega engin tilviljun enda eiga margir eflaust von á pakkasendingum nú í aðdraganda jólanna. „Dæmi eru um að í tölvupósti sé fólki sagt að sending bíði þeirra og að það þurfi að smella á hlekk og gefa upp kortnúmer og öryggisnúmer greiðslukorts. Sé brugðist við því og kortaupplýsingar gefnar, fylgir gjarnan SMS skilaboð með kóða. Einnig eru dæmi um að fólk sé blekkt með svipuðum hætti til að skrá kortaupplýsingarnar í það sem virðist vera Apple Pay,“ segir í tilkynningu Valitor. Fyrirtækið ítrekar jafnframt viðvaranir sínar og biðlar þess til almennings að opna ekki hlekki sem fylgja slíkum skilaboðum og að gefa ekki upp korta- eða persónuupplýsingar. „Einnig er mikilvægt er að gefa alls ekki upp öryggiskóða sem berst með SMS hvort sem um er að ræða kóða til að ljúka við greiðslu, eða ef skilaboðin gefa til kynna að verið sé að skrá kort í Apple Pay. Texta skilaboð þessi innihalda ítarlegar upplýsingar um það sem korthafi er að samþykkja með slíkum staðfestingarkóða og því er afar mikilvægt að lesa vel skilaboðin og áframsenda kóðann ekki í blindni. Því miður eru dæmi um að korthafar hafið tapað háum upphæðum vegna svika af þessum toga,“ segir í tilkynningynni. Telji fólk sig hafa orðið fyrir barðinu á slíkum svikapósti eða skilaboðum er því bent á að hafa samband við sinn viðskiptabanka eða þjónustuver Valitor. Þá sé hægt að tilkynna svik til lögreglunnar á netfangið cybercrime@lrh.is.
Netglæpir Netöryggi Greiðslumiðlun Pósturinn Fjártækni Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira