Sport

Stóri Ben og félagar frekar litlir í sér í tapi á móti einu lélegasta liði deildarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ben Roethlisberger og félagar í Pittsburgh Steelers eru í tómu tjóni með liðið sitt rétt fyrir úrslitakeppni.
Ben Roethlisberger og félagar í Pittsburgh Steelers eru í tómu tjóni með liðið sitt rétt fyrir úrslitakeppni. AP/Michael Conroy

Pittsburgh Steelers tapaði þriðja leiknum í röð í nótt og liðið sem var síðasta liðið til að tapa leik hefur ekki gert annað síðan.

Cincinnati Bengals var aðeins búið að vinna tvo af fyrstu tólf leikjum sínum í NFL-deildinni í vetur en vann frekar sannfærandi 27-17 sigur á Pittsburgh Steelers í lokaleik fimmtándu leikviku.

Cincinnati Bengals var 17-0 yfir í hálfleik og 24-10 yfir þegar sex mínútur voru eftir af leiknum.

Þetta gerði Cincinnati Bengals liðið þrátt fyrir að leik án sinna tveggja stærstu stjarna, leikstjórnandans Joe Burrow og hlauparans Joe Mixon.

Ryan Finley, þriðji leikstjórnandi liðsins, leiddi liðið til sigurs og hlauparinn og varaskeifan Giovani Bernard átti mjög góðan leik.

Ben Roethlisberger, leikstjórnandi Pittsburgh Steelers, átti ekki góðan leik og liðið hans virðist vera í tómu tjóni.

Steelers vann ellefu fyrstu leiki sína á tímabilinu en hefur nú tapað þremur í röð og ekki skorað yfir tuttugu stig í fjórum síðustu leikjum sínum.

Það héldu flestir að liðið myndi rífa sig upp á móti einu slakasta liði NFL-deildarinnar en annað kom heldur betur á daginn. Í ofanlag var liði að tapa í fyrsta sinn fyrir Bengals síðan 2015.

„Við verðum að kafa djúpt. Við þurfum að finna út hvað er að og verða betri,“ sagði varnarmaðurinn TJ Watt eftir leik.

„Ég hef aldrei hætt að trúa á þetta lið. Við verðum bara að leysa þetta og ég tel að við getum það,“ sagði Ben Roethlisberger.

Pittsburgh Steelers er fyrir löngu búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni en þessi taphrina hefur aftur á móti gefið Cleveland Browns tækifæri til að vinna Norðurriðil Ameríkudeildarinnar því Browns er nú aðeins einum sigri á eftir Steelers.

Pittsburgh Steelers á heldur ekki auðvelda andstæðinga í lokaumferðunum eða umrætt Cleveland Browns lið á útivelli og svo Indianapolis Colts sem hefur líka unnið tíu af fjórtán leikjum sínum á leiktíðinni.


NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×