Lífið

Steindi og Sigrún fengu athyglisverða heimsókn upp á hótelherbergi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Evil Opal mætti með aðstoðarmann upp á herbergi.
Evil Opal mætti með aðstoðarmann upp á herbergi.

Steinþór Hróar Steinþórsson hefur síðustu vikur verið með þættina Steinda Con á föstudagskvöldum á Stöð 2. Um er að ræða sex þætti þar sem hann fer með sex mismunandi gestum á hátíðir og ráðstefnur víða um heim.

Steindi hefur nú þegar farið á ráðstefnu með Önnu Svövu á BronyCon sem er My Little Pony ráðstefna fyrir fullorðna. Svo fór hann á heimsmeistaramótið í luftgítar í Finnlandi með móður sinni og síðan á Drekahátíð með Hugleiki Dagssyni sem er ein stærsta larphátíð heims.

Svo skellti hann sér á geimveruráðstefnu með Bergi Ebba og reyndu þeir að komast alla leið að area 51 í Bandaríkjunum. Í síðasta þætti fór hann á FetishCon með kærustu sinni Sigrúnu Sigurðardóttur í Flórída.

Þátturinn var heldur betur athyglisverður og kom í ljós að gestir hátíðarinnar höfðu blæti fyrir allskyns hlutum.

Á hátíðinni hitti parið konu að nafni Evil Opal sem bauðst til að hitta þau uppi á hótelherbergi til að fara aðeins yfir málin. Það endaði með því að tveir einstaklingur mættu upp á herbergi og var Steindi rassskelltur bak og fyrir eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.