Innlent

Fluttur á Land­spítalann eftir vél­sleða­slys

Sylvía Hall skrifar
Maðurinn var fluttur á Landspítalann. 
Maðurinn var fluttur á Landspítalann.  Jón Páll Ásgeirsson

TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld eftir að vélsleðaslys varð skammt frá Hólmavík.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti þetta í samtali við mbl.is.

Þyrlan flutti hinn slasaða á Landspítalann en ekki fengust frekari upplýsingar um líðan hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×