Innlent

Fjórir fluttir á slysa­deild eftir um­­­ferðar­­slys á Reykja­nes­braut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Fjórir voru fluttir á slysadeild í morgun.
Fjórir voru fluttir á slysadeild í morgun. Vísir

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut við Álverið Straumsvík nú í morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir voru fluttir á slysadeild, mismikið slasaðir, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Lokað var fyrir umferð um Reykjanesbraut í rúma klukkustund á meðan vinna stóð yfir á vettvangi en vegurinn var opnaður aftur á tíunda tímanum.

Jóhannes Guðnason, bílstjóri sem oft er nefndur konungur þjóðveganna, hefur verið fastur á Reykjanesbrautinni rétt norðan við álverið frá því klukkan hálfa átta. 

Hann lýsti því í samtali í Bítinu á Stöð 2 í morgun að nokkur fjöldi sjúkrabíla hefði verið á vettvangi. Í það minnsta fjórir. Hann hefði séð bíla dregna í burtu. Þá væri afar hált á Reykjanesbrautinni.

Hann sagðist vona að ekki væri um alvarlegt slys að ræða þótt hann væri ekki bjartsýnn.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×