Viðskipti erlent

Óttast mjög um stöðu flugfélaga

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Fjölmörgum flugvélum hefur verið lagt á meðan faraldurinn gengur yfir. 
Fjölmörgum flugvélum hefur verið lagt á meðan faraldurinn gengur yfir.  EPA/ETIENNE LAURENT

Flugvellir víðs vegar um heiminn eru nú yfirfullir af flugvélum, enda hefur ferðum fækkað talsvert vegna kórónuveirufaraldursins. Fjölmörg ríki hafa sett á ferðabann og ljóst er að tekjutap flugfélaga heimsins er mikið.

Á flugvellinum í Tulsa í Bandaríkjunum sitja fimmtíu vélar American Airlines kyrrar á flugbrautunum en flugfélagið segir að um 450 þotum hafi verið lagt nú þegar.

Þetta er bara eitt flugfélag af fjölmörgum og má áætla að tugum þúsunda flugvéla hafi verið lagt vegna faraldursins, hvort sem það er á flugbrautum, í flugskýlum eða einhvers staðar allt annars staðar,

Virði flugfélaga heimsins hefur dregist saman um meira en helming frá því kórónuveiran greindist fyrst og höggið hefur nú þegar reynst FlyBe of þungt. Félagið fór á hausinn í upphafi mánaðar.

Útlit er fyrir að mun fleiri fari sömu leið. Alþjóðasamband flugfélaga reiknar með allt að 113 milljarða dala tekjumissi á árinu.

Miklir hagsmunir eru í húfi. Í Bandaríkjunum einum vinna tíu milljónir annað hvort hjá flugfélögum eða afleidd störf. Alþjóðasambandið kallaði í vikunni eftir aðstoð G20-ríkjanna og sagði þörf á aðgerðum til að fyrirbyggja að allt fari á versta veg.


Tengdar fréttir

Rúmlega hundrað missa vinnuna hjá Isavia

101 starfsmanni Isavia hefur verið sagt upp störfum og hefur 37 starfsmönnum verið boðið áframhaldandi starf í lægra starfshlutfalli, samkvæmt heimildum Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×