Tónlist

Gríðarlega öflug á Facebook

Söngkeppni framhaldsskólanna er enginn eftirbátur hvað tækni varðar og er keppnin að sjálfsögðu komin með síðu á samskiptasíðunni Facebook. Yfir tíu þúsund manns eru aðdáendur keppninnar á Facebook en það samsvarar um þriðjungi framhaldsskólanema á landinu.

Síðan hefur verið gríðarlega öflug frá því hún var opnuð og eru myndbrot með keppendum, kynningarefni og skemmtilegum mistökum sem orðið hafa fyrir framan myndavélarnar. Allar upplýsingar um keppnina er einnig að finna á síðunni og hægt er að hlusta á öll lögin sem keppa í ár. Það þarf því ekki að fara langt til að verða sér úti um upplýsingar um keppnina. Sjá Facebook.com/songkeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.