Lífið

Samúel og Kristín selja íbúð sína í miðbænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg eign á besta stað.
Skemmtileg eign á besta stað.
Tónlistarmaðurinn Samúel Jón Samúelsson og Kristín Bergsdóttir hafa sett íbúð sína við Baldursgötu á söluskrá en ásett verð er 39,9 milljónir.

Íbúðin er á jarðhæð í hjarta borgarinnar og er hún 73 fermetrar að stærð.

Húsið var byggt árið 1960 og er íbúðin í fjölbýli. Fasteignamat eignarinnar er 35 milljónir.

Eitt svefnherbergi er í íbúðinni sem er á besta stað í borginni. Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr íbúð Samúels og Kristínar.

Íbúðin er í fjölbýli í miðbænum.
Litrík og skemmtileg stofa.
Væntanlega eru hjónin að vera stækka við sig þar sem eitt svefnherbergi virðist ekki duga.
Ofboðslega skemmtileg borðstofa.
Krúttlegt baðherbergi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.