Um 500 manns tóku þátt í árlegri göngu Pieta Ásgeir Erlendsson skrifar 6. maí 2017 13:50 Gengið var um fimm kílómetra í Laugardal í nótt.
Um 500 manns tóku þátt í árlegri göngu Pieta gegn sjálfsvígum í nótt þar sem gengið var úr myrkrinu inn í ljósið. Bjarni Karlsson, prestur og meðlimur í samtökunum, segir nauðsynlegt að hugmyndin um sjálfsvígsforvarnahús verði að veruleika sem fyrst. Gangan hófst í myrkri klukkan fjögur í nótt en gengin var fimm kílómetra leið frá Holtavegi um Laugardal og inn í ljósið. Tilgangur göngunnar var að tvíþættur. Annars vegar að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi og hins vegar að safna fyrir sjálfsvígsforvarnahúsi sem Pieta-samtökin ætla að setja á fót. Bjarni Karlsson, prestur og meðlimur í samtökunum, var ánægður með þátttökuna í göngunni, en fimm hundruð manns gengu inn í ljósið að þessu sinni.„Ég er að finna, sjá þessa miklu breiðfylkingu fólks sem á það sameiginlegt að láta sér ekki á sama standa. Þegar þetta hús fæðist – af því að það mun fæðast – þá er það eign þjóðarinnar. Það verður fallegur staður þar sem tekið verður á móti fólki til þess að horfa í augun á einstaklingnum sem er að þjást og vera hjá honum, vera honum samferða, og þola ástandið þar sem gangan út úr myrkrinu hefst alltaf inni í myrkrinu,“ segir Bjarni Karlsson.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Segir Grænland ekki falt Erlent Fleiri fréttir Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Sjá meira