Lífið

Norskar húfur nefndar eftir Sigur Rós

Halldór Helgason var með Hoppipolla-húfu þegar hann vann til gullverðlauna á X-Games-mótinu í janúar.
Halldór Helgason var með Hoppipolla-húfu þegar hann vann til gullverðlauna á X-Games-mótinu í janúar.
„Ég er mjög mikill aðdáandi Sigur Rósar og Jóns og nafnið er augljóslega vísun í lag hljómsveitarinnar,“ segir Petter Foshaug, stofnandi norska húfuframleiðandans Hoppipolla Headwear.

Fyrirtækið var stofnað á árinu og er nefnt eftir lagi Sigur Rósar Hoppípolla af plötunni Takk.... sem kom út árið 2005. Lagið er eitt allra útbreiddasta lag hljómsveitarinnar og hefur verið notað í fjölmörgum auglýsingum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndastiklum. Lagið var til að mynda í stiklu Óskarsverðlaunamyndarinnar Slumdog Millionaire og í auglýsingum þátta David Attenborough, Planet Earth. Loks heyrðist lagið í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC um björgun námuverkamannanna í Síle.

Petter Foshaug er mikill Íslandsvinur og hefur sjö sinnum heimsótt landið. Brettakappinn Halldór Helgason kom Hoppipolla-húfunum rækilega á framfæri þegar hann var með eina á hausnum þegar hann vann til gullverðlauna í háloftaflokki bandaríska X-Games mótsins í janúar, sem er eitt stærsta mót sinnar tegundar í heiminum. „Vinsældir Halldórs hafa hjálpað mikið og við höfum verið á meðal mest seldu húfanna í flestum búðanna sem við dreifum í,“ segir Foshaug, en húfunum er dreift víða um Evrópu og alla leið til Kóreu.

En nú eru strákarnir í Sigur Rós þekktir fyrir ást sína á lopahúfum, hafa þeir fengið sendar Hoppipolla-húfur? „Við erum komnir með dreifingaraðila á Íslandi og þeir ætluðu að kanna hvort það væri hægt að fá meðlimi Sigur Rósar til að nota húfurnar,“ segir Petter Foshaug.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.