Lífið

67 ára og elskar stripparahæla

Stórleikkonan Helen Mirren er ekki há í loftinu og því elskar hún svokallaða stripparahæla. Hún klæddist slíku pari á frumsýningu Red 2 í vikunni.

Helen hefur löngum verið hrifin af þessum himinháu hælum eins og hún sagði spjallþáttakónginum Jay Leno frá árið 2010.

Þetta kallar maður hæla.
“Þeir eru leynivopnið mitt. Stripparahælar sem ég keypti á Hollywood Boulevard. Þeir hækka mann um átján sentímetra á svipstundu,” sagði Helen og bætti við að hún þyrfti þessa sentímetra til að halda í við hávöxnu leikkonurnar á rauða dreglinum.

Gamla heldur sér.
Pæja á sjötugsaldri.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×