Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist hafa gefið þá skipun að sjóliðar sökkvi írönskum bátum sem siglt sé of nærri bandarískum herskipum og séu notaðir til að áreita herskipin. Sjóher Bandaríkjanna sagði frá því í síðustu viku að ellefu bátum Byltingarvarða Íran hafi verið siglt upp að bandarískum herskipum í Persaflóa, á alþjóðlegu hafsvæði.
Í um klukkustund var skilaboðum og viðvörunum bandarískra sjóliða ekki svarað og héldu Íranarnir áfram að sigla í kringum herskipin í mikilli nálægð.
Trump sagði frá skipun sinni í tísti í dag. David Norquist, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði það til marks um að bandarískir sjóliðar hefðu rétt á sjálfsvörn.
I have instructed the United States Navy to shoot down and destroy any and all Iranian gunboats if they harass our ships at sea.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 22, 2020
John Hyten, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, var á sama blaðamannafundi og Norquist og vildi hann ekki segja hvort að aðgerðum Írana í síðustu viku hefði verið svarað með skothríð, hefði Trump gefið umrædda skipun fyrir það.
Hann sagði þó að það væri vel hægt að túlka það að menn miði byssum á bandarísk herskip sem ógnandi hegðun.
Hér má sjá myndband sem Sjóherinn sendi frá sér í síðustu viku.
BREAKING: 11 Iranian #IRGCN vessels repeatedly conducted dangerous & harassing approaches against U.S. naval ships operating in international waters of North Arabian Gulf. U.S. crews took actions deemed appropriate to avoid collision.
— U.S. Navy (@USNavy) April 15, 2020
Details: https://t.co/ZVKPKv738o pic.twitter.com/lKJgDz0l2N
Talsmaður Byltingarvarða Íran, sagði í samtali við AP fréttaveituna að Trump væri að níðast á Íran og hann ætti þess í stað að einbeita sér að þeim sjóliðum Bandaríkjanna sem hafa smitast af Covid-19, sjúkdómnum sem nýja kórónuveiran veldur.
Þá tilkynntu yfirvöld Íran í dag að fyrsta hernaðar-gervihnetti ríkisins hafi verið skotið á loft. Sérfræðingar sem fylgjast með ríkinu segja tæknina sem þurfi til þess til marks um að ríkið gæti þróað langdrægar eldflaugar.