Sport

Boothroyd sleppur við refsingu

Boothroyd missti algjörlega stjórn á skapi sínu á leiknum gegn Palace í vikunni en slapp við að vera settur í bann
Boothroyd missti algjörlega stjórn á skapi sínu á leiknum gegn Palace í vikunni en slapp við að vera settur í bann NordicPhotos/GettyImages

Adrian Boothroyd, knattspyrnustjóri Watford í ensku 1. deildinni, sleppur við leikbann eftir að hafa misst stjórn á sér í síðari leik Watford og Crystal Palace í úrslitakeppni 1. deildar á dögunum. Boothroyd lenti í riskingum á hliðarlínunni og litlu munaði að allt logaði í slagsmálum milli leikmanna.

Óttast var að Boothroyd yrði settur í leikbann í kjölfarið og myndi því missa af úrslitaleiknum um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Lið Watford gæti þó enn átt yfir höfði sér sekt fyrir að missa stjórn á leikmönnum sínum. Það verða Watford og Leeds sem mætast í hreinum úrslitaleik um það hvort liðið vinnur sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×