Sport

Navratilova með brjóstakrabbamein

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Navratilova á  góðri stundu með Njáli Quinn.
Navratilova á góðri stundu með Njáli Quinn.

Tennisgoðsögnin Martina Navratilova greindi frá því í dag að hún væri með brjóstakrabbamein. Þrátt fyrir það býst hún við því að ná fullum bata.

Navratilova sagðist hafa verið greind með krabbameinið í febrúar. „Ég brotnaði saman þegar ég fékk fréttirnar," sagði hin 53 ára Navratilova.

Krabbameinið var á byrjunarstigi er það greindist og því náðist að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.

Hún þarf þó að fara í geislameðferð í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×