Ótti hefur áhrif á frammistöðu í vinnu 6. febrúar 2020 09:00 Of mikið álag og ótti við að missa starf sitt getur leitt til mistaka. Vísir/Getty
Það hvernig okkur líður hefur eðlilega mikil áhrif á það hvernig okkur gengur í vinnunni og flestir þekkja það að þegar við hræðumst eitthvað eða erum kvíðin, dregur það úr frammistöðu okkar. Bandaríski rafmagnsverkfræðingurinn John Dyer hefur skoðað það hvaða aðstæður skapa ótta hjá starfsmönnum. Dyer starfaði lengi hjá General Electric en rekur í dag sitt eigið ráðgjafafyrirtæki og hefur m.a. gefið út bókina The Facade of Excellence: Defining a New Normal of Leadership.’’ Samkvæmt skilgreiningu Dyers er hægt að flokka aðstæður sem skapa ótta hjá starfsmönnum í fjórar tegundir. Tegund 1: Óttinn við að segja frá. Orðatiltækið „ekki skjóta sendiboðan” á vel við þennan flokk því þarna er um að ræða ótta eða kvíða sem margir upplifa áður en þeir segja frá einhverju slæmu eða neikvæðu. Dæmi um þetta gæti verið að segja yfirmanninum frá einhverju sem klúðraðist fyrir mistök. Hér skiptir mestu máli að stjórnendur velti því fyrir sér hvernig þeir bregðast sjálfir við neikvæðum upplýsingum. Samkvæmt John eru miklar líkur á að starfsfólk velji frekar þann kost að þegja eða fela hlutina frá yfirmönnum, ef sá hinn sami er líklegur til að bregðast alltaf illa við. Það sama á við þegar stjórnendur krefjast þess af undirmönnum sínum að þeir segi ekki frá mistökum nema þeir séu klárir með tillögu að lausn um leið. Þannig getur ótti starfsmanna við að segja frá, gert það að verkum að stjórnendur eru minna upplýstir en þeir ættu að vera. Tegund 2: Óttinn við að mistakast. Öll hræðumst við mistök og skiptir þá engu hvert stöðuheitið okkar er. Staðreyndin er hins vegar sú að það getur enginn sagt að hann/hún geri aldrei mistök. Stjórnendur geta dregið úr hættu mistaka. Það er til dæmis vitað að ef fólk er undir miklu álagi vegna þess að það óttast að missa starf sitt, eru meiri líkur á að það geri mistök. Tegund 3: Óttinn við breytingar. Samkvæmt skilgreiningu Dyers eigum við það öll til að vilja festast í viðjum vana og hefða. Við sköpum okkur öll okkar eigin rútínu. Þegar huga þarf að breytingum þurfa stjórnendur hins vegar að vera meðvitaðir um að gefa starfsfólki rými til undirbúnings. Ef starfsmannateymi hafa til dæmis búið við óbreytta stöðu til margra ára, má gera ráð fyrir öflugu viðnámi við breytingum. Mestu máli skiptir að tilkynningar um breytingar komi starfsfólki ekki of mikið af óvörum því uppnám starfsmanna getur gert öllum erfiðara fyrir í breytingarferlinu sjálfu Tegund 4: Óttinn við að koma með ábendingar um umbætur. Það geta falist mikil verðmæti í því fyrir fyrirtæki ef starfsfólk er duglegt að koma með ábendingar um það sem betur má fara. Stjórnendur þurfa hins vegar að skapa starfsfólki þær aðstæður að það þori að koma með slíkar ábendingar. Nefnir Dyer það sérstaklega að ef fólk hræðist það að hugmyndir þeirra gætu þýtt niðurskurð fyrir starfsfélaga, er algengt að fólk viðri hugmyndirnar ekki við yfirmenn. Sömuleiðis fá stjórnendur ekki að heyra bestu tillögurnar ef andrúmsloftið á vinnustaðnum er þannig að fólk hræðist að vera dæmt fyrir mistök ef eitthvað gengur ekki upp (tegund 3).
Tengdar fréttir Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00 Að setja sér markmið í starfi 2020: Þrjár skotheldar leiðir Fyrir hvað viltu vera þekkt/þekktur í starfi? Hvaða fimm atriði stóðu uppúr hjá þér árið 2019? Rúna Magnúsdóttir stofnandi The Change Makers hvetur fólk til að setja sér persónuleg markmið í starfi fyrir árið 2020. 23. janúar 2020 09:00 Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Fleiri fréttir „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ „Breytingaskeið kvenna hefur líka áhrif á karlavinnustaði“ „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Sjá meira
Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00
Að setja sér markmið í starfi 2020: Þrjár skotheldar leiðir Fyrir hvað viltu vera þekkt/þekktur í starfi? Hvaða fimm atriði stóðu uppúr hjá þér árið 2019? Rúna Magnúsdóttir stofnandi The Change Makers hvetur fólk til að setja sér persónuleg markmið í starfi fyrir árið 2020. 23. janúar 2020 09:00