Tónlist

Spila blöndu af því besta

Fjórar þekktar hljómsveitir verða teknar fyrir hjá Dúndurfréttum í kvöld.
Fjórar þekktar hljómsveitir verða teknar fyrir hjá Dúndurfréttum í kvöld.

Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur nokkurs konar „best of“ kvöld á Gauki á Stöng í kvöld. Sveitin ætlar að spila lög með fjórum uppáhaldshljómsveitum sínum, Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. Verður meiri áhersla lögð á Pink Floyd en venjulega.

Dúndurfréttir eru í fantaformi um þessar mundir. Skemmst er að minnast tónleika sveitarinnar í Laugardalshöll þar sem hún spilaði plötuna The Wall með Pink Floyd í heild sinni ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands við frábærar undirtektir. Fyrir skömmu spiluðu þeir félagar síðan í Valaskjálfi á Egilsstöðum og voru móttökurnar ekki síðri.

 „Þetta var þvílíka stuðið,“ segir söngvarinn Matthías Matthíasson. „Þetta gaf nánast Höllinni ekkert eftir. Þetta var ótrúlegt. Ég hef varla spilað svona skemmtilegt gigg lengi fyrir færri áhorfendur.“



Framundan hjá Dúndurfréttum eru tónleikar á landsbyggðinni, þar á meðal á Akureyri. Einnig ætlar sveitin að halda stóra tónleika síðar á árinu þar sem lög Eagles verða í fyrirrúmi, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.