Fengu margir aðdáendur hennar sjokk þegar þeir sáu hversu mikið unnin myndin er, en var Kylie sjálf alsæl með útkomuna.
Við vitum hinsvegar ekki með ykkur, en þetta gerfi Kylie minnir okkur óneitanlega á ensku útgáfuna af Sollu Stirðu í Latabæjarþáttunum.
Eru þær Kardashian/Jenner systur þekktar fyrir óvenjulegar forsíður hjá Paper, en systir hennar Kim Kardashian sat fyrir á forsíðunni í desember 2014 og varð sú forsíða svo vinsæl að internetið fór á hliðina sælla minninga.
