Sport

Dagskráin í dag: Heimildarmynd um Muhammad Ali og Manstu?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Muhammad Ali (í rauðu) slær til Joe Fraizers í MSQ árið 1971.
Muhammad Ali (í rauðu) slær til Joe Fraizers í MSQ árið 1971. vísir/getty

Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Stöð 2 Sport

Dagurinn á Stöð 2 Sport byrjar með krakkamótunum áður en körfuboltinn tekur yfri sviðið. Leið Snæfells að titlinum 2010, mögnuð viðureign Stjörnunnar og KR árið 2011 og svo margt, margt fleira má finna á Sportinu í dag. Þar á meðal má finna einstaka heimildarmynd frá HBO í tveimur hlutum um einn þekktasta bardagamann heims, Muhammad Ali. Hér er sögð saga þessa merka manns sem talaði fyrir réttindum minnihlutahópa og þá sem skortir rödd. Í þessari mynd eru sýnd myndbrot af meistaranum sem aldrei hafa birst áður.

Stöð 2 Sport 2

Magnaður leikur frá einvígi ÍR og Selfoss í 8 liða úrslitum Olís deildar karla árið 2019, handboltaannállinn frá síðasta ári, heimildaþáttur um sigursælasta þjálfara Íslandssögunnar, Alfreð Gíslason, er á meðal þess sem fólk getur dundað sér við að horfa á Stöð 2 Sport 2 í dag.

Stöð 2 Sport 3

Á Sport 3 má finna skemmtilegan spurningaleik um enska boltann í umsjón Guðmundar Benediktssonar. Þar er farið yfir og spurt um helstu lið Englands. Einnig má aðra þáttaröðina af þessum sömu þáttum þar sem farið er yfir víðan völl. Þegar líða fer á daginn er svo rætt við nokkra af þeim leikmönnum sem hafa spilað fyrir Íslands hönd í ensku úrvalsdeildinni.

Stöð 2 eSport

Stjörnum prýtt mót í eFótbolta á vegum La Liga á Spáni. Keppt er í FIFA20 en meðal keppenda eru stórstjörnur úr spænsku 1. deildinni, auk þekktra leikmanna úr NBA- og NFL-deildunum bandarísku hefst klukkan 17.00 í dag. Einnig má finna Lenovo-deildina, Vodafone-deildina og landsleiki í eFótbolta.

Stöð 2 Golf

Það helsta af Tiger Woods, sýndar svipmyndir frá Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ þar sem efnilegustu kylfingar landsins tóku þátt árið 2013 og mikið meira golf má finna á Stöð 2 Golf í dag.

Alla dagskrá dagsins má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×