Tónlist

Nýtt myndband frá Tilbury frumsýnt á Vísi á morgun

Rammi úr myndbandinu sem frumsýnt verður á morgun.
Rammi úr myndbandinu sem frumsýnt verður á morgun.
Nýtt myndband frá Tilbury lítur dagsins ljós á morgun. Myndbandið er við lagið "Drama" og gerist í sérkennilegri garðveislu hjá ungri stúlku. Um er að ræða ástarsögu stúlku og drengs, en með óvenjulegum blæ þar sem stúlkan reynist vera andsetin. Og veislan er öll hin einkennilegasta.

Myndbandinu er leikstýrt af Helga Jóhannssyni og framleitt af Atla Viðari Þorsteinssyni, en það er dansarinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir sem leikur andsetnu stúlkuna. Mörgum af fremstu ungu leikurum landsins bregður síðan fyrir í veislunni. Myndbandið var allt tekið upp í einu skoti, sem var metnaðarfullt verkefni fyrir kvikmyndagerðarðarmennina Helga og Atla sem vildu með því færa áhorfandann nær því hvernig það er að upplifa andsetna garðveislu frá fyrstu hendi. Tónlistarmyndbönd Helga og Atla hafa áður vakið eftirtekt landans, ekki síst myndband þeirra við lag Berndsens, Supertime sem olli miklu fjaðrafoki um árið og er eitt vinsælasta myndband íslensks flytjanda á Youtube.

Hljómsveitin Tilbury hefur verið iðin við kolann allt frá því að plata sveitarinnar, Exorcise, kom út í byrjun maí. Þeir eru nýkomnir úr tónleikaferð í Noregi og annað kvöld munu þeir stíga á stokk á forkvöldi Bræðslunnar á Borgarfirði eystri. Um Verslunarmannahelgina munu þeir svo koma fram á Innipúkanum í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.