Tónlist

Opna öfluga vefsíðu um tónlist

Óli Dóri, stjórnandi útvarpsþáttarins Straums á X-inu 9.77, ritstýrir virkri og daglegri tónlistarumfjöllun á nýju vefsíðunni straum.is.
Óli Dóri, stjórnandi útvarpsþáttarins Straums á X-inu 9.77, ritstýrir virkri og daglegri tónlistarumfjöllun á nýju vefsíðunni straum.is. Fréttablaðið/Ernir
„Mér fannst eitthvað vanta til að skrásetja þessa íslensku tónlistarsenu sem er í gangi og hefur verið mjög öflug síðustu ár," segir tónlistarspekingurinn Ólafur Halldór Ólafsson, betur þekktur sem Óli Dóri. Hann hefur sett á laggirnar vefsíðuna straum.is sem verður með virka og daglega tónlistarumfjöllun.

Óli Dóri er ritstjóri síðunnar og hefur áralanga reynslu af kynningu nýrra og ferskra tóna í útvarpsþætti sínum Straumi, sem er á dagskrá X-ins 9.77 á mánudagskvöldum milli klukkan tíu og tólf. Hægt er að nálgast upptökur af þættinum hér á Vísi á slóðinni visir.is/straumur.

„Ég hef verið með þáttinn í sex ár með hléum og hann hefur gengið mjög vel," segir hann en heimasíðan er ákveðið framhald af góðri umfjöllun Straums.

Vefsíðan fór af stað um helgina og standa Ernir Eyjólfsson ljósmyndari, Jón Örn Loðmfjörð, sem sér um forritun og Davíð Roach Gunnarsson greinahöfundur, að síðunni ásamt ritstjóranum og eru fleiri pennar að bætast í hópinn.

Umfjölluninn verður alhliða og lýtur bæði að íslenskri og erlendri tónlist í formi kynninga, ritaðra viðtala og myndbandsviðtala.

„Við ætlum að reyna að hafa vikuleg myndbandsviðtöl og erum búnir að taka eitt við Skúla mennska. Við heimsóttum hann í aukavinnuna en hann er pylsusali, sem er mjög skemmtilegt. Við ætlum líka að reyna að sýna daglegt líf fólks sem er í þessum geira," segir Óli Dóri. -hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.