Deilan um DV: Stjórnarformaður vill úttekt á fjárreiðum félagsins Bjarki Ármannsson skrifar 31. ágúst 2014 13:25 Deilan um eignarhald DV stendur nú sem hæst. Vísir/Pjetur
Þorsteinn Guðnason, stjórnarformaður DV, hyggst leggja fram tillögu um óháða úttekt á fjárreiðum og rekstri félagsins undanfarin ár og segist hafa haft „áhyggjur af því að að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorsteini en miklar deilur standa nú yfir varðandi eignarhald miðilsins. Nú nýverið hafa Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, gefið það í skyn opinberlega að Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður hafi haft áhrif á fréttaflutning DV af útgerð sinni með því að lána Reyni Traustasyni ritstjóra fé til að kaupa hlutafé í félaginu. Þessu neita bæði Guðmundur og Reynir staðfastlega. Þorsteinn segir sömuleiðis að Reynir miði að því að skapa sér stöðu til að nýverandi stjórn DV sitji áfram óbreytt með „afar ógeðfelldum aðferðum.“ Fresta þurfti fundi yfirstjórnar DV nú á föstudag vegna deilna milli eigenda meirihluta hlutafjár í félaginu og eigenda minnihluta. Yfirlýsingu Þorsteins má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:Ég hef um nokkurt skeið setið undir ásökunum um að vera „óvinur undir rúmi“ ritstjóra DV og hyggja á fjandsamlega yfirtöku á blaðinu. Þessar ásakanir hafa verið settar fram af forsvarsmönnum blaðsins, þótt ég hafi fyrir þeirra orð lagt DV ehf til umtalsverða fjármuni á undanförnum mánuðum og misserum til að halda rekstri þess gangandi.Krafa okkar sem eigum meirihluta í DV ehf. er að fá fulltrúa kjörna í stjórn í samræmi við hlutafjáreign. Brölt Reynis Traustasonar undanfarið miðar að því að skapa sér stöðu, með afar ógeðfelldum aðferðum, til að núverandi stjórn sitji áfram óbreytt. Reynir og þrír aðrir stjórnarmenn eiga saman um 10% hlutafjár en við, sem eigum saman góðan meirhluta í félaginu, eigum einn fulltrúa. Tilraunir Reynis til að taka yfir stjórnina með þessu eru í óþökk eigenda og því fjandsamlegar.Í harðri umræðu síðustu daga hefur jafnframt verið gefið í skyn að eigendur meirihluta hlutafjár í DV vilji með einhverjum hætti skerða ritstjórnarlegt sjálfstæði blaðsins. Slíkt er fjarri sanni. Ég hef sem stjórnarformaður aldrei skipt mér af einstökum fréttum í blaðinu DV eða á vefnum dv.is.Á hinn bóginn hef ég um skeið haft áhyggjur af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins. Orðrómur þess efnis hefur magnast upp á síðkastið og hefur nú leitt til þess að ásakanir hafa verið settar fram á opinberum vettvangi af Sigurði G. Guðjónssyni hrl og Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.Ég tel nauðsynlegt að hreinsa blað og vef af öllum ásökunum um óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu miðilsins sem hefur um áratugaskeið gefið sig út fyrir að vera frjáls og óháður. Ég mun því á framhaldsaðalfundi DV ehf næstkomandi föstudag leggja fram tillögu um óháða úttekt á fjárreiðum og rekstri DV ehf undanfarin ár.Þetta er ekki síst gert þar sem erfiðlega hefur gengið fyrir hluthafa og stjórnarmenn í DV ehf að fá sjálfsagðar upplýsingar úr rekstri fyrirtækisins. Einfaldar fyrirspurnir hafa legið mánuðum saman án þess að vera svarað af þar til bærum aðilum.Þá verð ég einnig að geta þess, að í dag bárust mér upplýsingar um að fyrrverandi blaðamaður á DV hyggist setja sig í samband við Fjölmiðlanefnd til að skýra frá sínum þætti varðandi fréttaflutning af málefnum Vinnslustöðvarinnar. Það er skylda mín sem ábyrgs stjórnarmanns og blaðinu fyrir bestu að sannleikurinn komi fram í þessu máli.Þorsteinn Guðnason
Tengdar fréttir Hafnar ritstjórastöðu hjá DV Björn Þorláksson, ritstjóri AKV, segir í færslu sinni á Facebook að honum hafi verið boðin staða ritstjóra hjá DV. Þar segir hann jafnframt að hann hafi hafnað tilboðinu. 27. ágúst 2014 17:56 Blaðamenn DV harma orð Björns Leifssonar Blaðamenn DV segja orð Björns benda til þess að hann sé gagngert að kaupa hlutabréf í DV til að stuðla að því að nýr ritstjóri verði ráðinn til blaðsins. 27. ágúst 2014 16:22 Lofar fjörugum aðalfundi DV Í dag verður aðalfundur hlutafélags DV haldinn, þar sem meðal annars verður kosið í nýja stjórn félagsins 29. ágúst 2014 07:00 „Þetta hlýtur að enda með ósköpum“ Aðalfundi útgáfufélags DV var frestað um viku nú síðdegis vegna ágreinings um ársreikninga. 29. ágúst 2014 18:43 Þöggunartilraunir lýsa vanþekkingu og skilningsleysi Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir yfir furðu sinni á að fjársterkir einstaklingar reyni að hafa áhrif á eignarhald á fjölmiðlum. 29. ágúst 2014 14:16 Guðmundur í Brimi ætlar að stefna Elliða "Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð,“ segir Guðmundur Kristjánsson oft kenndur við Brim í tilkynningu til fréttastofu. 31. ágúst 2014 11:41 Segir að Reynir hafi ekki gert samstarfsmönnum rétt grein fyrir stöðu mála "Að undanförnu hafa stjórnendur DV haft uppi ásakanir í minn garð um ég að standi fyrir fjandsamlegri yfirtöku á blaðinu. Ekkert er fjær sanni.“ 27. ágúst 2014 20:00 Slagnum um eignarhald DV frestað um eina viku Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir deilur innan eigendahóps DV ehf. hljóta að enda með ósköpum. Hann sakar stjórnarformann félagsins um lögbrot. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður gefur lítið fyrir ásakanirnar og segir Reyni hafa stundað bolabrögð á aðalfundi félagsins í gær. 30. ágúst 2014 08:00 Bíða í von og óvon fyrir utan fundinn Blaðamenn DV hafa þungar áhyggjur af áhrifum breyts eignarhalds á lífsviðurværi sitt og hafa fjölmennt fyrir utan aðalfund hlutafélags blaðsins sem nú stendur yfir. 29. ágúst 2014 15:14 Kaupir hlut í DV og vill Reyni út Laugar ehf. hafa keypt 4,42 prósent hlut í DV ehf. en Laugar eru í eigu Björns Leifssonar oft kenndur við World Class. 26. ágúst 2014 23:14 Björn Leifsson farinn af fundinum: Vantar undirskrift Björn Leifsson, eigandi World Class og nýr hluthafi í DV, yfirgaf hluthafafund DV á Hótel Natura um klukkustund eftir að hann hófst þegar það kom í ljós að undirskrift eins eigenda félagsins Catalina ehf., sem Björn keypti á þriðjudag, vantar á kaupsamninginn. 29. ágúst 2014 16:25 Segir Reyni hafa fallið á eigin bragði Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Björns Leifssonar, segir Reyni Traustason vera "óheiðarlegan með afbrigðum“. 30. ágúst 2014 10:03 Hluthafafundur DV hafinn: Þorsteinn lofar frelsi og Reynir einhverju óvæntu Ekki frekar en að Al Gore fann upp internetið hefur Reynir Traustason einkaleyfi á frjálsri fjölmiðlun og rannsóknarblaðamennsku,“ segir Þorsteinn Guðnason sem reynir að kaupa meirihluta í DV. 29. ágúst 2014 15:21 Aðalfundi DV frestað um viku Aðalfundi útgáfufélags DV var frestað um viku nú síðdegis vegna ágreinings um ársreikninga félagsins. 29. ágúst 2014 18:05 Reynir reiknar með að hætta á DV á föstudag Reynir segir um nakta tilraun að ræða til þess að kaupa út tjáningarfrelsið. Með þessu sé Björn að kaupa sér þögn miðilsins, en honum hafi þótt umfjöllun DV um sig óþægileg. 27. ágúst 2014 13:27 Reynir viðurkennir að hafa fengið lán frá Guðmundi „Það er rétt að félag í eigu Guðmundar lánaði mér til kaupa á hlutafé rétt eins og Gísli Guðmundsson, kenndur við B&L, veitti slíkt lán sem síðan fór inn í einkahlutafélagið Ólafstún,‟ segir Reynir á fésbókarsíðu sinni. 31. ágúst 2014 10:52 Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira
Hafnar ritstjórastöðu hjá DV Björn Þorláksson, ritstjóri AKV, segir í færslu sinni á Facebook að honum hafi verið boðin staða ritstjóra hjá DV. Þar segir hann jafnframt að hann hafi hafnað tilboðinu. 27. ágúst 2014 17:56
Blaðamenn DV harma orð Björns Leifssonar Blaðamenn DV segja orð Björns benda til þess að hann sé gagngert að kaupa hlutabréf í DV til að stuðla að því að nýr ritstjóri verði ráðinn til blaðsins. 27. ágúst 2014 16:22
Lofar fjörugum aðalfundi DV Í dag verður aðalfundur hlutafélags DV haldinn, þar sem meðal annars verður kosið í nýja stjórn félagsins 29. ágúst 2014 07:00
„Þetta hlýtur að enda með ósköpum“ Aðalfundi útgáfufélags DV var frestað um viku nú síðdegis vegna ágreinings um ársreikninga. 29. ágúst 2014 18:43
Þöggunartilraunir lýsa vanþekkingu og skilningsleysi Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir yfir furðu sinni á að fjársterkir einstaklingar reyni að hafa áhrif á eignarhald á fjölmiðlum. 29. ágúst 2014 14:16
Guðmundur í Brimi ætlar að stefna Elliða "Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð,“ segir Guðmundur Kristjánsson oft kenndur við Brim í tilkynningu til fréttastofu. 31. ágúst 2014 11:41
Segir að Reynir hafi ekki gert samstarfsmönnum rétt grein fyrir stöðu mála "Að undanförnu hafa stjórnendur DV haft uppi ásakanir í minn garð um ég að standi fyrir fjandsamlegri yfirtöku á blaðinu. Ekkert er fjær sanni.“ 27. ágúst 2014 20:00
Slagnum um eignarhald DV frestað um eina viku Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir deilur innan eigendahóps DV ehf. hljóta að enda með ósköpum. Hann sakar stjórnarformann félagsins um lögbrot. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður gefur lítið fyrir ásakanirnar og segir Reyni hafa stundað bolabrögð á aðalfundi félagsins í gær. 30. ágúst 2014 08:00
Bíða í von og óvon fyrir utan fundinn Blaðamenn DV hafa þungar áhyggjur af áhrifum breyts eignarhalds á lífsviðurværi sitt og hafa fjölmennt fyrir utan aðalfund hlutafélags blaðsins sem nú stendur yfir. 29. ágúst 2014 15:14
Kaupir hlut í DV og vill Reyni út Laugar ehf. hafa keypt 4,42 prósent hlut í DV ehf. en Laugar eru í eigu Björns Leifssonar oft kenndur við World Class. 26. ágúst 2014 23:14
Björn Leifsson farinn af fundinum: Vantar undirskrift Björn Leifsson, eigandi World Class og nýr hluthafi í DV, yfirgaf hluthafafund DV á Hótel Natura um klukkustund eftir að hann hófst þegar það kom í ljós að undirskrift eins eigenda félagsins Catalina ehf., sem Björn keypti á þriðjudag, vantar á kaupsamninginn. 29. ágúst 2014 16:25
Segir Reyni hafa fallið á eigin bragði Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Björns Leifssonar, segir Reyni Traustason vera "óheiðarlegan með afbrigðum“. 30. ágúst 2014 10:03
Hluthafafundur DV hafinn: Þorsteinn lofar frelsi og Reynir einhverju óvæntu Ekki frekar en að Al Gore fann upp internetið hefur Reynir Traustason einkaleyfi á frjálsri fjölmiðlun og rannsóknarblaðamennsku,“ segir Þorsteinn Guðnason sem reynir að kaupa meirihluta í DV. 29. ágúst 2014 15:21
Aðalfundi DV frestað um viku Aðalfundi útgáfufélags DV var frestað um viku nú síðdegis vegna ágreinings um ársreikninga félagsins. 29. ágúst 2014 18:05
Reynir reiknar með að hætta á DV á föstudag Reynir segir um nakta tilraun að ræða til þess að kaupa út tjáningarfrelsið. Með þessu sé Björn að kaupa sér þögn miðilsins, en honum hafi þótt umfjöllun DV um sig óþægileg. 27. ágúst 2014 13:27
Reynir viðurkennir að hafa fengið lán frá Guðmundi „Það er rétt að félag í eigu Guðmundar lánaði mér til kaupa á hlutafé rétt eins og Gísli Guðmundsson, kenndur við B&L, veitti slíkt lán sem síðan fór inn í einkahlutafélagið Ólafstún,‟ segir Reynir á fésbókarsíðu sinni. 31. ágúst 2014 10:52