Lífið

Ingó gaf Júlíönu falleinkunn þegar enginn í boðinu heyrði til

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingó var ekki beint heiðarlegur við matarborðið.
Ingó var ekki beint heiðarlegur við matarborðið.

Júlíana Sara Gunnarsdóttir var gestur hjá Evu Laufey Kjaran í síðasta þætti af Matarboði Evu. Þar lærði hún að matreiða Blómkáls tacos.

Júlíana var nokkuð borubrött þegar hún var í kennslu hjá Evu en þegar á hólminn var komið reyndist verkefnið erfiðara.

Hún bauð vinum og vandamönnum í mat og var einn af þeim Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð. Ingó talaði einstaklega fallega um réttina við matarborðið en þegar hann var síðan einn með myndatökumanni var allt annað hljóð í Ingólfi og fékk maturinn í raun algjöra falleinkunn.

Hér að neðan má sjá matarboðið sjálft.

Klippa: Ingó gaf Júlíönu falleinkunn þegar enginn í boðinu heyrði til

Hér að neðan má sjá uppskrift af réttunum sem Júlíana bar fram.

Blómkáls tacos

Fyrir 2-3

1 stórt blómkál

2 msk olía

1 ½ tsk salt

1 ½ tsk pipar

1 ½ tsk paprika

1 ½ cumin krydd

1 ½ kóríander, malaður

Aðferð:

1.Skerið blómkálið í litla bita og setjið í skál ásamt þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan og olíu, blandið vel saman (best að nota hendurnar í verkið).

2.Þið getið annaðhvort ofnbakað blómkálið eða djúpsteikt.

3.Ef þið ætlið að ofnbaka þá stillið þið ofninn á 220°C, leggið blómkálið í eldfast mót og bakið í 15 mínútur. Snúið blómkálinu einu sinni við og bakið áfram í 15 mínútur. Þá er það tilbúið!

4.Ef þið viljið djúpsteikja, þá veltið þið blómkálsbitunum upp úr hveiti og síðan upp úr orly deigi. Steikið í olíu sem þolir djúpsteikingu í örfáar mínútur á öllum hliðum þar til blómkálsbitarnir eru gullinbrúnir. Þið getið séð aðferðina í Instastory hjá mér á Instagram.

Orly deig:

250 ml hveiti

250 ml sódavatn

1 tsk lyftiduft

1 1/2 tsk salt

1 tsk pipar

1 tsk srircacha sósa

Aðferð:

1.Blandið hveitinu, sódavatninu, lyftidufti, salti og pipar saman í skál og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Bragðbætið gjarnan með sriracha sósu.

Lárperujógúrtsósa:

5 msk grískt jógúrt

1 hvítlauksrif

Safi úr hálfri límónu

1 tsk hunang

2 lárperur

Salt og pipar, eftir smekk

Aðferð:

2.Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota.

Ferskt salat:

Rauðkál, hálft höfuð

Handfylli kóríander

3 msk smátt skorinn vorlaukur

1 tsk salt

1 msk appelsínusafi

Aðferð:

3.Skerið rauðkálið smátt eða rífið það niður í matvinnsluvél.

4.Saxið kóríander og vorlauk smátt.

5.Blandið öllum hráefnum saman í skál og bragðbætið með salti og appelsínusafa.

Pulled pork tacos

Fyrir fjóra

800 g úrbeinaður svínahnakki

1 msk ólífuolía

2 tsk paprikukrydd

2 tsk cumin krydd

2 tsk allrahandakrydd

1 tsk hvítlauksduft

Salt og pipar, magn eftir smekk ca. 1 tsk af hvoru

2 hvítlauksrif

330 ml bjór

2 dl soðið vatn

Handfylli kóríander

½ rautt chilialdin

1 laukur

Aðferð:

1. Forhitið ofninn í 160°C (blástur)

2. Hitið olíu í potti sem þolir að fara inn í ofn og helst með loki.

3. Steikið kjötið upp úr olíunni og kryddið, saxið lauk, hvítlauk og chili og setjið saman við. Steikið vel í tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið.

4. Hellið bjórnum saman við og látið sjóða í tvær mínútur, bætið kóríander saman við í lokin.

5. Setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 160°C í fjórar til sex klukkustundir.

6. Bætið soðna vatninu saman við þegar kjötið er tilbúið og hrærið vel upp í því, rífið það í sundur og smakkið til með salti og pipar.

7. Geymið kjötið til hliðar á meðan þið útbúið einfalt meðlæti.

Tillögur að meðlæti:

·Tortillavefjur

·Límóna

·Kóríander

·Hreinn fetaostur

·Jalepeno

·Pikklaður rauðlaukur

Chipotle sósa

·4 msk sýrður rjómi

·1-2 tsk chipotle mauk

·Salt og pipar

·Límóna úr hálfri límónu

Aðferð:

1. Setjið öll hráefnin saman í skál og blandið vel saman, smakkið ykkur til með chipotle maukið.

2. Geymið sósuna í kæli áður en þið berið hana fram.

Pikklaður rauðlaukur.

·1 rauðlaukur

·1 dl hvítvínsedik

·1 msk sykur

Aðferð:

1. Skerið rauðlauk í jafn stórar sneiðar, setjið í krukku eða skál og hellið hvítvínsediki og sykri saman við.

2. Blandið vel saman og geymið í kæli í lágmark klukkustund.

Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu

Vanillubúðingur

·500 ml rjómi

·100 g hvítt súkkulaði

·2 msk. Vanillusykur

·Fræ úr 1 vanillustöng

·2 plötur matarlím

Vanillubúðingur:

1. Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í fjórar til sex mínútur. Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman við og bræðið í rólegheitum.

2. Bætið vanillufræjum og vanillusykri saman við þegar súkkulaðið er bráðnað og kreistið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna.

3. Hellið í skálar og geymið í kæli í minnsta kosti tvær til þrjár klukkustundir. Best yfir nótt.

Ástaraldinsósa

·3 ástaraldin

·3 tsk. Flórsykur

·1 mangó

·Fersk ber til skrauts, til dæmis jarðarber og brómber

·Hvítt súkkulaði, magn eftir smekk

Ástaraldinnsósa

1. Skafið innan úr ástaraldininu og skerið mangó smátt, rífið niður hvítt súkkulaði og blandið öllu saman við smá flórsykur. Setjið vanillubúðinginn og skreytið með berjum áður en þið berið hann fram og njótið strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.