Bíó og sjónvarp

Fjölmargir Röskvuliðar fóru með hlutverk í Hallmark-myndinni Ást á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Greinilega mjög rómó mynd.
Greinilega mjög rómó mynd.

Bandaríska sjónvarpsstöðin Hallmark frumsýndi kvikmyndina Love on Iceland þann 18. janúar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Kaitlin Doubleday og Colin Donnell en myndin fjallar um ferð Chloe til Íslands með háskólavinkonunum. 

Þar hittir hún fyrrverandi kærasta sinn Charlie sem leiðir til þess að þau fara eyða miklum tíma saman.

Hallmark er þekkt fyrir rómantískar myndir og hefur stöðin gefið út mörg þúsund slíkar kvikmyndir.

Það var Clare Niederpruem sem leikstýrði myndinni sem var að stórum hluta tekin upp hér á landi.

Meðal annars fékk Röskva-samtök félagshyggjufólks við Háskola Íslands það hlutverk að finna til aukaleikara og tóku því margir háskólanemar þátt í kvikmyndinni.

Þau voru bæði í aukahlutverkum í Bláa Lóninu, sem þjónar á veitingastað og sem ljósmyndanemar. Um 30 Röskvuliðar tóku þátt í kvikmyndinni og er fyrirhugað að halda bíókvöld í nánustu framtíð.

Á kvikmyndavefnum IMDB fær Love on Iceland 6,4 í einkunn þegar þessi frétt er skrifuð. 

Hér að neðan má sjá brot úr þessu meistaraverki.

Leikararnir voru teknir tali hér á landi
Á tökustað
Áskorun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.