Hitatjaldið sem á að verja Laugardalsvöllinn fyrir Vetri konungi er komið í skip og á leið til Íslands.
Það snjóar mikið á Laugardalsvöllinn í dag nú þegar aðeins 28 dagar eru í að Ísland tekur þar á móti Rúmeníu í undanúrslitum umspils um sæti á EM 2020.
Knattspyrnusamband Íslands lét vita af því á samfélagsmiðlum sínum að hitatjaldið, sem er jafnan kallað pulsan í daglegu máli, hafi lagt af stað til Íslands í gær.
Hitatjaldið lagði af stað til Íslands í gær.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) February 26, 2020
Rétt rúmar fjórar vikur í leikdag!#fyririslandhttps://t.co/2dL6jxr1C4
KSÍ birti þá tíst frá Sports & Stadia um að allt dótið væri komið inn í gám og lagt af stað til Íslands.
Fjórir starfsmenn Sports & Stadia munu síðan fljúga til Íslands í næstu viku en það verður í þeirra höndum að setja upp pulsuna og vakta hana fram að leiknum.
Pulsan heldur hita á vellinum og hjálpar grasinu að verða tilbúið fyrir leikinn en það er jafnframt laus að hún má ekki við því að lenda í vondu veðri enda tekur hún auðveldlega vind.