Lífið

Kvenskörungar hylltir hjá REY

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Skemmtilegir speglar á miðjum tískupallinum hjá Rey.
Skemmtilegir speglar á miðjum tískupallinum hjá Rey. Vísir/Andri Marinó
Rebekka Jónsdóttir, sem hannar undir merki sínu REY, var með flotta sýningu þar sem andi áttunda áratugarins sveif yfir vötnum. 

Samfestingar og víðar skálmar. Flæðandi efni, djúpur rauður litur í bland við svartan og hvítan. 

Einnig mátti sjá silfurlitinn slæðast með í buxum og pili sem setti svip á sýninguna. 

Rebekka segir sjálf um fatalínuna að hún hafi horft til kvenskörunga frá gullaldartímabili Hollywood eins og Katherine Hepburn og Joan Crawford.

Buxnadragt með víðum skálmum.
Leðurhanskar settu töffaralegan svip á klæðnaðinn.
Flottur samfestingur með víðum ermum.
Hár og förðun voru í anda gamla Hollywood.
Heilsteypt og falleg lína frá Rebekku sem mun sóma sér vel í búðunum næsta vetur.
RFF

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.