Körfubolti

Pavel bestur Höfrunganna en það dugði ekki til sigurs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Pavel
Pavel Ermolinskij átti stórleik með Norrköping Dolphins sem tapaði 62-67 gegn Södertälje Kings í C-riðli Áskorendakeppni Evrópu í körfuknattleik í kvöld.

Pavel skoraði 15 stig, tók 12 fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal tveimur boltum. Þá spilaði hann í 36 mínútur eða mest allra í liði gestanna.

Höfrungarnir hefðu getað tryggt sæti sitt í 16-liða úrslitum með sigri. Liðið hefur nú jafnmörg stig og Kóngarnir í öðru sæti C-riðils. Úrslitin ráðast í lokaumferðinni þegar Norrköping sækir Tampereen Pyrintö heim en Kings mætir toppliði BK Ventspils sem er ósigrað.

Sigmundur Már Herbertsson var einn þriggja dómara leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×