Bíó og sjónvarp

Ágústa hjá frönskum harðstjóra

Ágústa Eva varð vitni að ótrúlegu harðræði kennarans Gaultier í trúðaskólanum í París.
Ágústa Eva varð vitni að ótrúlegu harðræði kennarans Gaultier í trúðaskólanum í París.

Þetta var mjög gaman og ákaflega forvitnilegt,“ segir leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir en hún er snúin aftur heim eftir mánaðardvöl í frönskum trúðaskóla í höfuðborginni París. „Þetta er mjög sérstakur skóli því fólk getur verið þarna allt frá viku og uppí heilt ár,“ útskýrir Ágústa en námskeiðið snýst um að finna gleðina í að leika.

Leikkonan varð þó vitni að furðulegum hlutum á meðan námskeiðinu stóð því kennarinn Philip Gaulier var hrikalegur harðstjóri og allt að því hálfgerður nasisti. „Hann braut nemendurna fyrst niður og tókst að græta stóran hluta bekksins,“ segir Ágústa en áréttar að hún hafi staðið fast á sínu og ekki leyft Gaulier að komast upp með neitt múður. „Hann beitti æði sérstökum námsaðferðum og fékk til að mynda aðra nemendur til að slá þá sem grátandi voru utan undir,“ segir Ágústa.

Enda er það iðulega svo að sögn Ágústu að margir nemendur gefast hreinlega upp á harðræðinu og snúa aftur til síns heima eftir skamma dvöl. Frá París hélt leikkonan til Svíþjóðar og brá sér í gervi Silvíu Nætur á Gay Pride í Gautaborg. Að sögn Ágústu gekk allt vel og sýndu sænskir fjölmiðlar heimsókninni mikinn áhuga en í september byrjar sænska sjónvarpsstöðin TV4 sýningar á síðustu þáttaröðinni um Silviu Night Superstar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×