Bíó og sjónvarp

Killer Joe aftur á svið

Björn Thors leikur Killer Joe
Björn Thors leikur Killer Joe
Sýningum á Killer Joe verður haldið áfram á Litla sviði Borgarleikhússins í byrjun september og er miðasala þegar hafin á vef leikhússins. Sýningin hlaut mikla athygli og lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda í vor, og alls 8 tilnefningar til Grímunnar í júní síðastliðnum. Þröstur Leó Gunnarsson landaði svo Grímunni sem besti karlleikari í aukahlutverki. Um takmarkaðan sýningarfjölda verður að ræða þar sem Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru á leið til London til að taka þátt í sýningum á Hamskiptunum. Fyrstu sýningar haustsins eru 6. september og 13. september n.k. Leikarar í Killer Joe eru: Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Jörundur Ragnarsson sem tekur við hlutverki Þorvaldar Þorvaldssonar. Leikstjóri er Stefán Baldursson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.