Elsta efni á jörðinni milljörðum árum eldra en jörðin Kjartan Kjartansson skrifar 14. janúar 2020 16:45 Rykagnirnar ævafornu var að finna í loftsteini sem féll til jarðar árið 1969. Myndin er úr safni. Vísir/Getty
Rykagnir sem vísindamenn fundu í lofsteini sem féll til jarðar á 7. áratug síðustu aldar er elsta efni sem fundist hefur á jörðinni. Elstu agnirnar urðu til í sólstjörnum milljörðum ára áður en sólkerfið okkar og jörðin urðu til. Áætlað er að rykið gæti verið allt að 7,5 milljarða ára gamalt en til samanburðar myndaðist jörðin fyrir um 4,5 milljörðum ára. Það fannst í Murchison-lofsteininum sem féll á Ástralíu árið 1969. Elsta þekkta efni sem fundist hafði á jörðinni fram að þessu var talið um 5,5 milljarða ára gamalt. Vísindamennirnir mátu aldur agnanna með því að mæla fyrir hversu miklu magni geimgeislunar þeir höfðu orðið fyrir. Geimgeislar eru háhraðaeindir sem ferðast um geiminn og smjúga í gegnum fast efni. Stundum gagnvirka þeir við efni og mynda ný frumefni. Hlutfall samsætu frumefnisins neons var notað til að áætla aldurinn, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Flestar agnirnar voru á aldur við sólkerfið eða nokkuð eldra, á bilinu 4,6 til 4,9 milljarða ára gamalt. Um 10% agnanna voru eldri en 5,5 milljarða ára gömul. Philipp Heck, aðalhöfundur greinar um rannsóknina og safnstjóri hjá Field-safninu í Chicago, segist sannfærður um að enn eldri agnir sé að finna í loftsteinum sem hafa lent á jörðinni. Þær eigi aðeins eftir að finnast. Uppruna elstu agnanna má rekja til sólstjarna sem brunnu og sprungu áður en sólkerfið okkar myndaðist. Slíkar leifar mynda nýjar stjörnur, reikistjörnur og annað efni í alheiminum.
Ástralía Vísindi Mest lesið Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Innlent Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Innlent Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Innlent Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Innlent Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Innlent Tekið á símanotkun strætóbílstjóra með hörku Innlent Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Innlent Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Innlent Ekkert eldsneyti í Staðarskála Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Fleiri fréttir Afhroð Íhaldsmanna og sexí smokkar Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Sjá meira