Lífið

Loksins alvöru "old-school DJ“ á Prikinu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Í kvöld fagnar útgáfan Sticky Records komandi Secret Solstice hátíð með ærlegri hiphop upphitun. Þar koma fram margir af helstu röppurum landsins en aðeins ein þeirra sem kemur fram getur státað sig af því að vera sannarlega „old-school“ á Prikinu. Það er engin önnur en María Guðmundsdóttir plötusnúður Ghetto Betur sem snýr aftur á gamla barinn sinn til þess að hrista upp í skrílnum.

„Það er eiginlega mál til komið að ég komist að á Prikinu enda búin að vera stunda þennan stað í all mörg ár,“ segir María og hljómar spennt fyrir því að boða út boðskap hip-hoppsins í kvöld. „Það er alveg ferlega langt síðan ég kom þangað fyrst. Ég var með fyrstu kúnnum þegar staðurinn opnaði. Þetta er klassastaður!“

„Ég hlakka til að komast að í kvöld. Enda er ég með afskaplega góðan umboðsmann, hann Steinda Jr. Hvað playlista varðar þá læt ég hann kannski hann bara um það. Ég var að vinna alveg til morguns í einhverju fjandans bankapartýi, þannig að ég er enn drulluþunn og vitlaus.“

María byrjaði að æfa sig á dj-græjurnar fyrir fjórum eða fimm mánuðum síðan. Hún segir að það aukist sífellt að fólk fái hana til þess að þeyta skífum í partýum.

Þannig að þú ert að færa þig inn í dj-bransann af fullri alvöru?

„Já, elskan mín. Bara no question about it. Steindi sér bara um að bóka giggin. Hann er líka svo afskaplega ódýr umboðsmaður. Maður þarf ekkert að borga honum svo mikið.“

Ásamt Maríu í kvöld koma fram Sturla Atlas, Bent, Gísli Pálmi, 7Berg, GKR, Geimfarar, Lord Pusswhip, Mælginn MC og DJ Spegill. Mælt er með því að mæta snemma.

Steindi Jr., María og Tussuduftið

María og Steindi Jr. eiga sér langa samstarfssögu en hún kom reglulega fram í gamanþáttum Steinda Jr. sem slógu í gegn fyrir nokkrum árum síðan. Hann fékk hana til liðs við sig eftir að hafa séð hana fyrst í sjónvarpsþáttunum Konfekt sem sýndir voru á Skjá 1 um aldamótin.

Atriðið sem heillaði Steinda upp úr skónum hét Tussuduft en það má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.