Flugvélaframleiðandinn Boeing segist hafa fullan skilning á þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til eftir hrap þotu Ethiopian Airlines um helgina. Engu að síður beri Boeing áfram fullt traust til Boeing 737 MAX-véla sinna, sem fjölmörg ríki og flugfélög hafa kyrrsett síðustu daga.
Í tilkynningu sem Boeing sendi frá sér nú á fjórða tímanum segir að grundvallarmarkmið flugvélaframleiðandans sé að standa vörð um öryggi. Því muni Boeing áfram eiga í reglulegum samskiptum við þá viðskiptavini sína sem tekið hafa ákvörðun um að leggja 737 MAX-vélunum eftir flugslys helgarinnar; eins og Norwegian og Icelandair.
Það muni flugvélaframleiðandinn gera svo að tryggja megi að viðskiptavinirnir „hafi allar nauðsynlegar upplýsingar svo að þeir geti áfram stýrt flota sínum með fullri vissu.“
Boeing segist jafnframt ekki ætla að beina nýjum tilmælum til viðskipavina sinna um hvernig þeir skuli bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.
Það gerði flugvélaframleiðandinn hins vegar eftir sambærilegt slys í október í fyrra þegar 737 MAX-þota Lion Air fórst skömmu eftir flugtak. Þá áréttaði Boeing að flugmenn ættu að fara eftir því sem fram kemur í handbók vélanna.
Boeing ber fullt traust til 737 MAX

Tengdar fréttir

Rúm 40 prósent allra 737 Max verið kyrrsettar
Ástralir, Singapúrar og stærðarinnar flugfélög í Brasilíu og Mexikó hafa öll kyrrsett vélar af gerðinni Boeing 737 Max 8.

Bretar banna Boeing 737 MAX í sinni lofthelgi
Bresk flugmálayfirvöld hafa bannað flugvélum af gerðinni Boeing 737 MAX í sinni lofthelgi.

Icelandair kyrrsetur Boeing 737 MAX 8-vélarnar
Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flugvélar sínar úr rekstri um óákveðinn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri.