Viðskipti erlent

Bretar segjast ekki hafa beitt AGS þrýstingi

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Franek Rozwadowski, fastafulltrúi AGS á Íslandi.
Franek Rozwadowski, fastafulltrúi AGS á Íslandi.
Bretar neituðu í gær að hafa beitt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þrýstingi vegna Icesave, að því er fram kemur í fréttaskýringu í breska viðskiptablaðinu Financial Times.

Þar kemur fram að íslensk yfirvöld gruni að AGS reyni að þrýsta á Alþingi um að staðfesta Icesave samninginn með því að tefja lán til landsins.

Bretar segjast hins vegar hvergi hafa komið þar nærri og benda á að það séu þeirra hagsmunir að íslenskt efnahagslíf taki við sér.

„Ríkisstjórnin styður áætlun AGS á Íslandi fullkomlega," segir fjármálaráðuneyti Bretlands.

Í fréttaskýringunni segir að í London finnist mönnum sem Íslendingar hafi tilhneigingu til að sjá breskt eða hollenskt samsæri að baki öllum slæmum fréttum.

Þá hafi Íslendingar gerst andsnúnir Bretum eftir að þeir beittu Landsbankann hryðjuverkalögum í október og reiði almennings hafi aftur blossað upp eftir að skilmálar Icesave samningsins voru gerðir ljósir.

Fréttaskýringu Financial Times má lesa hér, en þar er einnig fjallað um það hvernig AGS hefur reynt að gera sem minnst úr ósættinu við íslensk stjórnvöld vegna frestunar lána sjóðsins.


Tengdar fréttir

Lán AGS frestast um mánuð

Yfirvöldum hefur nú borist formleg staðfesting á því að framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins muni ekki taka fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands áður en hún fer í tveggja vikna sumarleyfi þann 7. ágúst líkt og að var stefnt, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Pólitíkin réði fyrirtöku AGS að lokum

„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur aldrei verið með hótanir í mín eyru,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundi í gær spurð hvort AGS hafi haft í hótunum við íslensk stjórnvöld um að fyrirtaka sjóðsins myndi frestast ef ekki yrði gengið frá Icesave.

Frestun AGS gæti fælt kröfuhafa frá bönkunum

„Ég óttast að þetta fæli kröfuhafana frá því að verða eigendur að bönkunum. Það er erfitt að ætla að verða eigandi banka þegar þú veist ekki hver aðkoma stjórnvalda er að bankakerfinu," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um frestun Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins (AGS) á lánveitingu til Íslands.

AGS lánið frestast

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn frestar endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og mun annar hluti láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum ekki verða greiddur í næstu viku. Taka átti endurskoðunina fyrir á mánudag. „Það mun ekki gerast í næstu viku teljum við," er haft eftir Caroline Atkinson hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á vef Bloomberg.

Samkomulag um endurskoðun AGS um mánaðarmótin

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur náð samkomulagi við íslensk stjórnvöld um að endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætluninni fyrir Íslandi muni ljúka um næstu mánaðarmót, það er í lok ágúst eða byrjun september.

Stjórnvöld ekki látin vita af frestun AGS láns

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun ekki taka málefni Íslands fyrir næsta mánudag, samkvæmt talsmanni sjóðsins. Ríkisstjórninni hefur þó ekki borist formleg tilkynning um þetta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×