Lífið

Var í sjálfskipaðri sóttkví í þessu þrettán fermetra herbergi í París

Stefán Árni Pálsson skrifar
Swanson hefur komið sér merkilega vel fyrir í herberginu.
Swanson hefur komið sér merkilega vel fyrir í herberginu.

Jay Swanson heldur úti eigin YouTube-rás þar sem hann sýnir ítarlega frá lífi sínu á skemmtilegan hátt.

Hann er búsettur í París í Frakklandi og býr í 13 fermetra herbergi í borginni.

Þegar útbreiðsla kórónuveirunnar fór á flug um Evrópu ákvað Swanson að vera í sjálfskipaðri sóttkví.

Í þessu litla herbergi hefur hann aftur á móti komið sem nokkuð vel fyrir, miðað við stærð þess.

Rúmið er til að mynda í töluverðari hæð og því nær hann að koma fyrir svefnsófa fyrir neðan, og getur jafnvel tekið á móti gestum.

Hér að neðan má sjá hvernig Jay Swanson býr í París.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.