Tónlist

Nýtt myndband frá PSY: Ætlar sér að koma útvíðum buxum aftur á kortið

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hinn suður-kóreski PSY fer sem fyrr mikinn í myndböndum sínum.
Hinn suður-kóreski PSY fer sem fyrr mikinn í myndböndum sínum.
Útvíðar buxur, furðuleg galdrabrögð með plastsverðum og tunnur munu öll njóta umtalsverðra vinsælda ef nýjasta myndband PSY fer á flug.

Lagið heitir 나팔바지(NAPAL BAJI) sem samkvæmt Google Translate þýðir „Trompetbuxur.“ Hvort það vísi til útvíðu buxnanna sem sá suður-kóreski skartar í myndbandinu skal ósagt látið.

Þó er alls ekki ólíklegt að landar hans muni nú klæðast þeim í auknum mæli en allt sem popparinn hefur látið frá sér í gegnum tíðinna hefur notið ómældra vinsælda.

Ekki þarf að líta lengra en til fyrsta ofursmells PSY, Gangnam style, sem er það myndband sem hefur fengið flest áhorf í sögu internetsins. Lagið er sagt vera gagnrýni á neysluhyggjuna í suður-kóresku samfélagi og er Gangnam vísun í samnefnt hverfi í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu.

Trompetbuxurnar rötuðu á vefinn í dag og ekki er útilokað að í þeim sé hápólitískur undirtónn. Það verður þó ekki fullyrt að svo stöddu – einfaldlega vegna lakrar suður-kóresku blaðamanns.

Myndbandið við lagið má þó sjá hér að neðan en það hefur fengið um 180 þúsund áhorf það sem af er degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.