Enski boltinn

Leikmenn Leicester að fagna í grímubúningum í Kaupmannahöfn

Mahrez fagnar hér fyrsta marki leiksins í leiknum í gær.
Mahrez fagnar hér fyrsta marki leiksins í leiknum í gær. Vísir/getty
Þýskur blaðamaður greindi frá því á Twitter-síðu sinni í dag að leikmenn Leicester City, toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar, væru staddir á bar í Kaupmannahöfn klæddir grímubúningum til þess að fagna góðu gengi undanförnum vikum.

Leicester vann sannfærandi 3-0 sigur á Swansea í gær en lærisveinar Claudio Ranieri hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og hafa ekki tapað leik í ensku úrvalsdeildinni síðan í september.

Hafa leikmenn á borð við Jamie Vardy og Riyad Mahrez slegið í gegn hjá liði Leicester sem var nálægt því að falla á síðasta tímabili en tókst að bjarga sér með ótrúlegum endaspretti.

Mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan en óhætt er að segja að leikmenn liðsins eigi svo sannarlega skilið að fá að lyfta sér upp eftir gott gengi undanfarnar vikur. Á myndinni má sjá leikmenn í skjaldbökubúningum og Spiderman-búningum meðal annars.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×