Arsenal datt út úr Evrópudeildinni í gærkvöldi er liðið tapaði 2-1 á heimavelli gegn Olympiakos í síðari leik liðanna. Framlengja þurfti leikinn og kom sigurmarkið í uppbótartíma.
Martin Keown, goðsögn hjá Arsenal, var einn spekinga BT Sport yfir leiknum og honum líst ekkert á blikuna hjá sínu gamla félagi.
„Þetta er hrikalegt. Allt hrós til Olympiakos og þeir gripu sína möguleika. Ég veit ekki hvað Leno var að gera í lokin. Það er fullt af hlutum sem þarf að vinna í hjá Arsenal og endurbyggingin hefst núna. Leikmenn tóku ekki ábyrgð,“ sagði Keown við BT Sport.
"The rebuilding of this team has to start now! The commitment wasn't there from the off."
— Football on BT Sport (@btsportfootball) February 27, 2020
Scathing from Martin Keown and John Hartson as the Gunners crash out of Europe with defeat at home. pic.twitter.com/WyV993WbPB
„Þeir voru svo ánægðir með sjálfa sig. Þetta eru mikil vonbrigði. Þetta var í fyrsta skipti í kvöld þar sem mér fannst leikmennirnir ekki koma með svör til þjálfarans og hann hafði engin svör heldur.“
Mikel Arteta tók við Arsenal af Unai Emery í desember og hefur verið að gera fína hluti með Skytturnar en Keown setur spurningarmerki við hann.
„Arteta hefur verið góður þjálfari en hversu góður stjóri er hann? Hann verður að spyrja sig margra spurninga eftir þetta. Þeir þurfa að horfa á sig í speglinum og reyna koma til baka í bikarleiknum á mánudaginn.“
„Ef Arsenal var að hugsa um að komast í Meistaradeildina þá yrðum við malaðir af toppliðunum. Arsenal er ekki nægilega gott lið til þess að spila á því stigi. Arsenal er hræðilega langt frá toppliðum eins og Real Madrid og Man. City.“
„Það þarf að fá litlu hlutina í lag. Við getum ekki varist hornspyrnum og það vita það allir. Portsmouth veit að ef þeir fá hornspyrnu gegn Arsenal þá gætu þeir skorað.“
Six big teams exit the Europa League pic.twitter.com/SeYIuvdGjg
— Football on BT Sport (@btsportfootball) February 27, 2020