Þrír dæmdir dópsmyglarar handteknir í gær 9. júní 2009 10:25
Fíkniefnalögreglan handtók í gær þrjá þekkta dópsmyglara í tengslum við rannsókn á gríðarlega umfangsmiklu fíkniefnamáli. Gæsluvarðhalds verður væntanlega krafist yfir tveimur þeirra, Sigurði Ólasyni og Ársæli Snorrasyni. Þriðja manninum hefur verið sleppt. Þeir hafa verið yfirheyrðir undanfarinn sólarhring og verst lögreglan allra frétta af málinu. Sigurður Ólason var handtekinn í gærmorgun í fyrirtækinu R. Sigmundssyni í Klettagörðum þar sem hann situr í stjórn. Á sama tíma var Ársæll Snorrason handtekinn í klefa sínum á Litla-Hrauni þar sem hann afplánar dópdóm. Þriðji maðurinn, sem er margdæmdur, var einnig tekinn höndum. Gerð var húsleit á heimili hans í Breiðholti eftir því sem heimildir fréttastofu herma en honum var sleppt eftir yfirheyslur í morgun. Grunur leikur á að mennirnir tengist tilraun til að smygla gríðarlegu magni af fíkniefnum til landsins frá Hollandi. Heimildir fréttastofu herma að einhverjir hafi verið handteknir vegna málsins þar í landi. Þeirra á meðal er Íslandvinurinn Johan Hendrick sem fékk sex ára fangelsisdóm fyrir þátt sinn í Stóra BMW-málinu árið 2006 þar sem áðurnefndur Ársæll var einnig dæmdur. Fréttastofa flutti fyrst allra fréttir af því að karlmaður á þrítugsaldri hafi setið í gæsluvarðhaldi frá 22. maí vegna gruns um aðild að innflutningi á hörðum fínkiefnum. Heimildir fréttastofu herma að handtaka þremenninganna í gær tengist því máli.
Mest lesið Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Innlent Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Innlent Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Innlent „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ Innlent Fleiri fréttir „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Mikil og þétt umferð í dag Eldsneyti komið aftur í Staðarskála Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Ekkert eldsneyti í Staðarskála Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Sjá meira