Fótbolti

Carragher: Við slógum besta lið í heimi úr keppni

Jamie Carragher
Jamie Carragher NordicPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool var í góðum anda í kvöld eftir að Liverpool sló Barcelona út úr Meistaradeildinni þrátt fyrir tap á heimavelli. Hann sagði þessa niðurstöðu líklega besta afrek Liverpool í Meistaradeildinni fyrir utan það að lyfta sjálfum bikarnum.

"Liverpool á sér glæsta sögu í Evrópukeppninni, en fyrir utan titlana sem liðið hefur unnið - er þetta án efa mesta afrek þess til þessa. Barcelona er besta lið í heimi þó við höfum slegið þá úr keppni og við vorum farnir að bíða eftir lokaflautinu þegar 10-12 mínútur voru eftir af leiknum. Það var dásamleg tilfinning þegar dómarinn flautaði af og við trúðum því varla að okkur hefði tekist þetta," sagði Carragher ánægður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×