Innlent

Sex ára drengur á batavegi

Sex ára drengur, sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugar Akureyrar á sjötta tímanum í gær, dvaldi á Fjórðungssjúkrahúsinu í nótt til eftirlits, en mun vera á góðum batavegi.

Svo vel vildi til að að þegar drengurinn fannst, voru sjúkraflutningamaður, hjúkrunarfræðingur, hjartasérfræðingur og heimilislæknir líka í lauginni, og með samstilltu átaki hópsins tókst að blása lífi í drenginn á ný. Tildrög eru ekki ljós, en drengurinn var með móður sinni í lauginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×