

Vanræksla stjórnvalda í forvarnamálum!
Í inngangi stefnunnar segir:„Markmið með heilsustefnu er ekki eingöngu að fólk nái háum aldri. Hún snýst ekki síður um að fólki líði sem best á meðan það lifir. Þá verður ekki framhjá því litið að sjúkdómar rýra lífsgæði og eru dýrir fyrir samfélagið og útlit er fyrir verulega aukningu á ýmsum langvinnum sjúkdómum í framtíðinni verði ekkert að gert. Því er mikilvægt að draga úr aukningu langvinnra sjúkdóma og gefa þeim sem fá sjúkdóma möguleika á að lifa betra lífi.“
Fagmennska og árangurVið vinnu stefnunnar var lögð áhersla á fagmennsku, og árangur. Íslenska þjóðin hefur séð nógu mikið af almennum stefnuyfirlýsingum sem ekki hefur verið fylgt eftir. Þessu vildum við breyta. Í ljósi þess var sett fram áætlun um 30 aðgerðir og rík áhersla lögð á að hægt yrði að meta árangur þeirra. Tilgreindir voru ábyrgðaraðilar með hverri aðgerð, þær voru mælanlegar og með tímamörkum.
Fagmennska og árangur voru leiðarljós stefnumótunarvinnunnar, sem auk þess að byggja á nýjustu rannsóknum, studdist við helstu aðgerðir sem áður hafði verið mælt með á sviði lýðheilsu hérlendis, stefnur og framkvæmdaáætlanir í nágrannalöndunum, auk þess sem horft var til áhersluatriða erlendra stofnana eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í lýðheilsumálum.
Starfið var því byggt bæði á reynslu Íslendinga en auk þess var stuðst við erlend gögn og skýrslur alþjóðastofnana um lýðheilsu. Síðast en ekki síst var aðgerðaáætlunin unnin með víðtæku samráði þar sem leitað var eftir áliti sem flestra þeirra sem málið varðar. Í því ferli voru haldnir fundir með öllum fulltrúum stærstu sveitarfélaga landsins, fulltrúum verslunar, þjónustu og iðnaðar. Einnig var fundað með fulltrúum stéttarfélaga, frjálsra félagasamtaka, háskóla og fagstétta. Sjónarmið þessara aðila og áherslur voru mikilvægt innlegg við mótun aðgerðaáætlunarinnar.
Í heild var vinnan við þessa stefnumótun á sviði forvarna fyrir þjóðina, liður í þeirri stefnu minni sem ráðherra að hafa fagmennsku og þekkingu að leiðarljósi. Nú skyldi maður ætla að það hefði verið góð þverpólitísk samstaða um að fylgja þessari stefnu eftir. Svo var ekki. Ögmundur Jónasson, fyrsti ráðherra heilbrigðismála af þremur í núverandi ríkisstjórn, hafði ekki þor né dug til að halda áfram starfinu; af þeirri einföldu ástæðu að hann hafði ekki átt frumkvæði að því. Pólitík gærdagsins! Þess í stað sá hann til þess að Heilsustefnan kæmi aldrei fyrir sjónir Íslendinga, setti hana niður í kjallara í ráðuneytinu og síðan hefur ekkert til hennar spurst. Árangurinn er einfaldlega sá að við horfum fram á stóraukinn vanda í þessum málaflokki og þá sérstaklega meðal ungs fólks.
Tökum höndum samanÞetta ástand er okkur Íslendingum til háborinnar skammar. Vanrækslan í þessum málaflokki mun koma niður á öllum, en sérstaklega þó ungu fólki sem mun lifa með afleiðingunum í formi skertra lífsgæða.
Góðu fréttirnar eru þær að við getum snúið þessari þróun við. Heilsustefnan sem lögð var fram í nóvember 2008 er góður grunnur til að byggja á. Komum henni í framkvæmd.
http://www.velferdarraduneyti.is/media/Skyrslur/Heilsustefnan.pdf
Skoðun

Börn, foreldrar og skólar í vanda: Hvernig eigum við að nálgast verkefnið?
Margrét Sigmarsdóttir,Bergljót Gyða Guðmundsdóttir,Arndís Þorsteinsdóttir,Edda Vikar Guðmundsdóttir skrifar

Nýr vettvangur samskipta?
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Nokkur atriði sem almennum borgara finnst að helst megi ekki ræða – eða mjög sjaldan
Hjalti Þórðarson skrifar

Vilja Ísland í sambandsríki
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Blikkandi viðvörunarljós
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi
Linda Jónsdóttir skrifar

Metnaðarfull markmið og stórir sigrar
Halla Helgadóttir skrifar

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?
Jón Jósafat Björnsson skrifar

Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar