Grétar segist strax hafa orðið sjúkur í Siggu Beinteins Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. maí 2020 08:16 Sigga og Grétar hafa þekkst í rúm þrjátíu ár. Stöð 2
Stjórnin hefur skemmt landanum í yfir þrjátíu ár. Margir tengja hvert lag við ákveðið tímabil, staðsetningu eða viðburð og eru sumarsmellirnir orðnir fjölmargir. Fylgst var með Stjórninni í Íslandi í dag í gærkvöldi og var þessari spurningu velt upp: Hversu vel þekkja Sigga og Grétar í Stjórninni hvort annað eftir að hafa verið „par“ í rúm þrjátíu ár og haldið tæplega þúsund tónleika saman? Hljómsveitin verður með tónleika á Stöð 2 í kvöld og segist Grétar Örvarsson, hljómsveitarmeðlimur, halda að þetta hljóti að vera þúsundasta skiptið sem sveitin stígi á stokk en þó þurfi alltaf að æfa fyrir tónleika. „Það er svo langt síðan við höfum spilað! Þetta er fyrsta Covid-giggið okkar, eins og við segjum.“ Stjórnin hefur skemmt landanum í rúma þrjá áratugi og eiga fjöldan allan af smellum.Stöð 2 Eins og gefur að skilja verða engir áhorfendur í kvöld en svona tónleika hefur stjórnin aldrei tekið áður. „Nei, ekki mikið. Maður spilaði náttúrulega mikið í sjónvarpi en þá ertu kannski að taka bara eitt lag. En að spila kannski heila tónleika, það verður örugglega svolítið skrítið, því maður hefur aldrei gert það fyrir framan tómt hús,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona sveitarinnar. Eins og fyrr segir hefur sveitin verið starfandi í rúm þrjátíu ár og segir Grétar þetta allt hafa byrjað eftir að hann nálgaðist Siggu. „Algjörlega sjúkur í hana, það fór ekki á milli mála,“ segir hann og sker upp hlátrasköll Siggu. „Ég var með stjórnina á Hótel Íslandi. Alda var að hætta, við vorum búin að vera með Stjórnina í nokkra mánuði, Sigga var að syngja í sýningu á Hótel Íslandi og ég bað hana að koma í hljómsveitina. Rest is history.“ Stjórnin mun spila fyrir tómum sal í kvöld en nóg verður af áhorfendum heima í stofu.Stöð 2 Sigga segist ekkert hafa þurft að hugsa sig um og í ljós kom að þau voru frábært teymi. Sveitin naut strax mikilla vinsælda og segir Grétar að þau hafi byrjað að finna fyrir vinsældunum eftir að Landslagið kom út. Þá hafi þau byrjað að fara út um allt land að spila og vinsældirnar farið að aukast. „Ég tala nú ekki um eftir að við tókum þátt í Eurovision 1990. Það var okkar aðal stökkpallur,“ segir Grétar. „Þetta var æðislega skemmtilegur tími og bara að taka þátt í þessari keppni var bara æðislegt og maður lærði mikið af þessu, fékk mikla reynslu í gegn um þetta allt saman. Að fá að kynnast þessu öllu eins og þetta var gert úti var bara flott. Svo að koma hérna heim og það var tekið á móti okkur með blómum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum beint að spila um leið og við komum heim,“ segir Sigga. Margir vonuðust til á sínum tíma að Sigga og Grétar væru par.Stöð 2 Margir héldu, og þá sérstaklega til að byrja með, að Sigga og Grétar væru par. Þau segjast hafa fundið fyrir þeirri pressu og Sigga segir að margir hafi haldið að þau væru par. „Það voru margir mjög svekktir þegar þeir föttuðu að við værum það ekki,“ segir Sigga. „Í sjálfu sér þurftum við ekkert að leiðrétta þetta mikið,“ segir Grétar. „Þetta var bara okkar til að vita og annarra til að komast að seinna.“ Eftir þrjátíu ára vináttu þekkjast þau vel og voru þau spurð spjörunum úr til að komast að því hversu vel þau þekktust í raun. Keppnin fór þannig að Grétar fékk fimm stig og Sigga þrjú. Mælt er eindregið við því að horft sé á keppnina í spilaranum hér að neðan, enda eru þau Sigga og Grétar stórskemmtileg. Dagskráin á tónleikunum í kvöld verður blönduð og munu þau bæði taka ný og gömul lög í bland. Þau segja að jafnvel verði eitthvað farið „út fyrir Stjórnarprógrammið.“ Þá segir Sigga að toppnum sé enn ekki náð: „Ég held að toppnum sé aldrei náð. Maður vill alltaf gera betur og reyna það allaveganna, þannig að ég vona að við séum ekki búin að ná toppnum.“ Hvað sumarið varðar er ekki ljóst hvort Stjórnin eða aðrar hljómsveitir geti skemmt á böllum en það verður sannarlega ball í kvöld heima í stofu. Uppfært. Stjórnin tróð upp á Stöð 2 og Vísi með miklum glæsibrag. Hægt er að horfa á Stjórnarballið hér fyrir neðan. Klippa: Stjórnarball á Stöð 2
Tónlist Ísland í dag Tengdar fréttir Jón Jónsson og Friðrik Dór í beinni Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson standa fyrir tónleikum á Stöð 2 og Vísi í beinni útsendingu í kvöld. 22. apríl 2020 12:31 Svona voru tónleikar Páls Óskars á Stöð 2 Páll Óskar heldur ball í sjónvarpssal klukkan 19.10. 17. apríl 2020 18:00 Bubbi í beinni á Vísi í kvöld Bubbi Morthens hefur staðið fyrir tónleikum í beinni á Vísi í hádeginu á föstudögum undanfarnar vikur. 17. apríl 2020 15:07 Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Lífið Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Lífið Helvítis kokkurinn: Heilög helvítis þrenna Lífið Glæsihöll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir Lífið Emil og Ása keyptu 330 milljóna einbýli í Fossvogi Lífið Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Lífið Sól og sæla á Götubitahátíðinni Lífið Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Menning Fleiri fréttir Four Tops söngvarinn Abdul „Duke“ Fakir látinn Óvænt að heyra að fólkið á LungA hafi alist upp við Hjaltalín Iceguys snúa aftur í sturluðu tónlistarmyndbandi Myndaveisla: Almennilegt rigningardjamm á Kótelettunni Iceguys dansandi í handjárnum Retro Stefson koma aftur saman Portú-galin stemning hjá Villa Netó Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Lætur langþráðan draum rætast og gefur út óð til grínsins Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Sterk sumarást í sveitinni kveikti áhugann á þýskunni Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Ungstirni gefur út sitt fyrsta lag DJ goðsögn stýrði trylltum dansi „Fólkið er kjarni Þjóðhátíðar og ég vildi sýna það“ Er ósigrandi á sviði og sækir orkuna niður í jörð Nýjasta súperstjarna heimsins „Stefni út í heim og er með stóra drauma“ Scooter til landsins með risatónleika í Laugardalshöll Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Lofar svakalegri veislu „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Sjá meira
Jón Jónsson og Friðrik Dór í beinni Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson standa fyrir tónleikum á Stöð 2 og Vísi í beinni útsendingu í kvöld. 22. apríl 2020 12:31
Svona voru tónleikar Páls Óskars á Stöð 2 Páll Óskar heldur ball í sjónvarpssal klukkan 19.10. 17. apríl 2020 18:00
Bubbi í beinni á Vísi í kvöld Bubbi Morthens hefur staðið fyrir tónleikum í beinni á Vísi í hádeginu á föstudögum undanfarnar vikur. 17. apríl 2020 15:07