Erlent

13 létust í bílsprengingu

Að minnsta kosti níu Írakar og fjórir útlendingar létu lífið þegar bílsprengja sprakk í miðborg Bagdad í morgun. Sprengjan sprakk þegar erlendar öryggissveitir óku fram hjá svæðinu og er talið að þær hafi verið skotmark uppreisnarmanna. Lögreglan í Bagdad segir að þrjátíu og fimm hið minnsta hafi særst í árásinni. Bílsprengjur og sjálfsmorðsárásir hafa verið tíðar í Bagdad og víðar í Írak að undanförnu og hafa tugir manna beðið bana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×