Innlent

Meintur barnaníðingur bar við minnisleysi

Mynd/Pjetur
Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa misnotað þrjár stúlkur kannaðist við yfirheyrslur við að eiga klámfengið efni sem fannst í tölvum á heimili hans en bar við minnisleysi þegar honum voru sýndar myndir af honum misnota eina stúlkuna. Á heimili mannsins fundust tæplega 9 þúsund ljósmyndir og rúmlega 600 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Brotinn varða allt að 16 ára fangelsi, en stór hluti brotanna er til á upptökum og ljósmyndum.

Maðurinn gekk laus í um það bil eitt ár eftir að myndir sem hann tók af fórnarlambi sínu komust í hendur lögreglu. Ekki var farið fram á að hann yrði úrskuraður í gæsluvarðhald fyrr en á laugardaginn þegar Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðustöðu að maðurinn skuli vera í varðhaldi til 22. júlí. Líkt og fram hefur komið staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð í dag.

67 klukkustundir af myndefni

Lögreglan gerði húsleit á heimili mannsins í Vestmannaeyjum 30. júní 2010 og lagði hald á geisladiska, DVD-diska, videoupptökuvél, myndbandsspólur, síma, stafrænar ljósmyndavélar og geisladiska með ætluðu klámefni. Í dómi héraðsdóms kemur fram að heildarfjöldi mynda hafi verið 8607, heildarfjöldi myndskeiða hafi verið 662 og heildarafspilunartími samtals 67 klukkustundir, 12 mínútur og 26 sekúndur. Í gögnunum er að finna ljósmyndir og hreyfimyndir sem sýna allt frá ungum börnum upp í unglinga á kynferðislegan og klámfenginn hátt og á sumum myndböndunum er gróft barnaklám. Á nokkrum myndskeiðum má greinilega þekkja eina stúlkuna, sem virðist sofandi, sem og manninn.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands kemur fram að ríkir almannahagsmunir standi til þess, að þegar svo stendur á sem í máli þessu, að menn sem sterklega eru grunaðir um svo alvarleg og ítrekuð brot gegn ungum börnum, gangi ekki lausir. „Vegna alvarleika, umfangs og eðli brotanna þykir engu breyta við mat á skilyrðum fyrir gæsluvarðandi af þessum toga þó ekki hafi verið farið fram á gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna meðan á lögreglurannsókn stóð.“


Tengdar fréttir

Níddist á telpu og myndaði athæfið

Karlmaður á fimmtugsaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rökstudds gruns að hann hafði níðst kynferðislega á stúlkubarni svo mánuðum skipti.

Gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi staðfest

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir meintum barnaníðingi í Vestmannaeyjum. Maðurinn er á fimmtugsaldri og telur saksóknari rökstuddan grun um að hann hafi níðst kynferðislega á stúlkubarni svo mánuðum skipti.

Lögregla gæti hafa gert mistök í máli barnaníðings

Meintur barnaníðingur í Vestmannaeyjum gekk laus í um það bil eitt ár eftir að myndir sem hann tók af fórnarlambi sínu komust í hendur lögreglu. Hann er grunaður um að hafa níðst á fórnarlambi sínu, átta ára stjúpdóttur sinni, svo mánuðum skipti.

Ólafur Helgi ekki íhugað að segja af sér

Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segist ekki hafa íhugað að segja af sér embætti eftir að Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir meintum barnaníðingi í Vestmannaeyjum.

Kallar eftir afsögn sýslumannsins á Selfossi

Fulltrúi í stjórnlagaráði segir að Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sé ekki fær um að vernda fólk og eigi því að segja af sér þegar í stað.

Sýslumaður átti að krefjast gæsluvarðhalds yfir stjúpföðurnum

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gagnrýnir Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og segir að eðlilegt hefði verið að krefjast gæsluvarðhalds yfir manni sem talinn er hafa nauðgað stjúpdóttur sinni í Vestmannaeyjum síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010. Að auki eru grunur um að maðurinn hafi misnotað tvær aðrar stúlkur á sama reki en grófustu brotin tók hann upp á myndband. Rætt var við Björgvin kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×