Aldrei fleiri hross á landsmóti en í sumar 29. júní 2011 07:00 Landsmótsgestir hafa fylgst vel með því sem fram fer á keppnisvellinum og fagnað ákaft þegar vel tekst til. Frettabladid/Hilda Karen „
Það hafa aldrei verið fleiri hross á landsmóti," segir Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Landsmóts 2011, sem nú stendur yfir á Vindheimamelum í Skagafirði. Um þúsund hross eru skráð til leiks á mótinu og segir Haraldur að þessi fjöldi stafi af meiri þátttöku og færri afskráningum heldur en oft áður. „Við getum því ekki annað sagt en að við höfum greint þörfina fyrir landsmót rétt, að hún sé mikil." Haraldur segir blómstrandi mannlíf vera á mótssvæðinu. Að vísu hafi svolítil gjóla verið undanfarna daga, en veðurspáin fyrir helgina sé ljómandi góð. „Það á að ganga í austanátt sem boðar blíðu í Skagafirðinum." Um fimm þúsund miðar höfðu verið seldir á mótið um miðjan dag í gær. Haraldur segir það fara fram úr björtustu vonum, því straumurinn liggi yfirleitt á landsmótsstað á fimmtudag og föstudag. „Aðstaðan hér er frábær", segir Haraldur spurður út í aðstæður til landsmótshalds á Vindheimamelum. „Skagfirðingar eru búnir að koma hér upp prýðisaðstöðu að öllu leyti enda kunna þeir það. Hér er fjöldi landsmótsgesta í tjöldum, tjaldvögnum og hjólhýsum. Ég hugsa að notkun á slíkri gistiaðstöðu hafi aukist ef eitthvað er. Auðvitað eru svo öll gistirými í nágrenninu full en við virðumst vera með töluvert meiri fjölda hér í byrjun móts heldur en var 2006."Haraldur Þórarinsson egir alla boðna og búna að hjálpa til þar sem þarf að leggja hönd á plóg.Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, segir mótshaldið hafa gengið afskaplega vel. „Andrúmsloftið í Skagafirði og svæðið hafa boðið menn velkomna og hér er allt eins og best verður á kosið. Hestakosturinn er alveg frábær, algjör veisla. Sérstaka eftirtekt mína hefur vakið hve börn, unglingar og ungmenni eru feikilega vel ríðandi og flinkir knapar. Það er gaman að sjá það." jss@frettabladid.is
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Fleiri fréttir Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg á Facebook Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni Sjá meira