Telur óþarfi að kalla þingið saman 29. júní 2011 21:54 Þór Saari og Bjarni Benediktsson. Þór telur ástæðulaust að kalla Alþingi saman.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, er ósammála Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, og telur óþarfi að kalla Alþingi saman vegna þess sem Bjarni kallar klúður stjórnarflokkanna þegar gleymdist á lokadögum þingsins að afgreiða mál sem snertu bæði Drekaútboðið og atvinnuleysisbætur. „Ég get ekki séð af hverju þing þarf að koma saman út af þessu,“ segir Þór. Bjarni segir að ríkisstjórnin sé að velta fyrir sér að setja bráðabirgðalög vegna klúðurs við að framlengja lagaheimild um hluta-atvinnuleysisbætur áður en þingið fór í sumarhlé. Af þeim sökum ætti að kalla Alþingi saman og þá gæfist einnig tækifæri til að leiðrétta annað klúður ríkisstjórnarinnar sem snýr að útboðsmálum á Drekasvæðinu. Bráðabirgðalög eru lög sem sett eru af ríkisstjórn án aðkomu Alþingis, en lögin eru borin undir þingið um leið og það kemur saman. Varðandi útboðsmálin segir Þór vel hægt að bíða þess að Alþingi komi saman í byrjun september og hvað hluta-atvinnuleysisbæturnar varðar segir Þór: „Ef að þetta var eitthvað klúður er spurning um að setja bráðabirgðalög því þetta getur komið illa við pyngjuna hjá fólki eða þá að greiða þetta út með reglugerð samkvæmt gömlu lögunum, en ég veit ekki hvort það er heimilt.“
Tengdar fréttir Alþingi komi saman til að leiðrétta klúður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að kalla verði Alþingi saman til að leiðrétta klúður stjórnarflokkanna þegar gleymdist á lokadögum þingsins að afgreiða mál sem snertu bæði Drekaútboðið og atvinnuleysisbætur. 29. júní 2011 17:18 Mest lesið Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Innlent Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Innlent Foreldrar Bryndísar Klöru í Kompás Innlent Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Innlent Fékk að borða hjá hjónunum þegar hann var svangur Innlent Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Innlent Sprungin dekk og ónýtar felgur Innlent Lögregla stöðvaði 195 í Ofurskálareftirliti Innlent Framkvæmdir á Bessastöðum kostuðu 120 milljónir Innlent Aðkoman vægast sagt ekki fögur Innlent Fleiri fréttir Hamar fannst í bíl hjónanna sem Alfreð ók Fundinum lokið án árangurs Framkvæmdir á Bessastöðum kostuðu 120 milljónir Ráðuneytið biður umboðsmann Alþingis afsökunar Hálfs árs dómur yfir skólastjóra fyrir umboðssvik Foreldrar Bryndísar Klöru í Kompás Fékk að borða hjá hjónunum þegar hann var svangur Ungir nágrannar heyrðu óvenjuleg hljóð frá heimili hjónanna Miðflokkurinn gagnrýnir að Daði Már flytji tölu Tryggja varnir Sjúkratrygginga eftir stórfelld fjársvik verkefnastjóra Sprungin dekk og ónýtar felgur Óvíst hversu langan tíma myndun meirihluta tekur Kennarar klæðast svörtu í dag Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Kennarar íhuga næstu skref og óvissa um borgarstjórnarmeirihluta Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Aðkoman vægast sagt ekki fögur Svona verða umræður um stefnuræðu Kristrúnar í kvöld Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Lögregla stöðvaði 195 í Ofurskálareftirliti Margar slæmar holur á Hellisheiði Heggur ísskúlptúra í bílskúrnum Kýldu dreng í Mjóddinni og reyndu að stela úlpu Býður sig fram til formanns Siðmenntar Rækta 60 tonn af íslenskum jarðarberjum Útilokar ekki frekari aðgerðir Allir þurfi að vera í verkfalli á sama tíma Höfnuðu sjúkraflugi vegna trjánna Kennaraverkföllin dæmd ólögmæt Sjá meira
Alþingi komi saman til að leiðrétta klúður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að kalla verði Alþingi saman til að leiðrétta klúður stjórnarflokkanna þegar gleymdist á lokadögum þingsins að afgreiða mál sem snertu bæði Drekaútboðið og atvinnuleysisbætur. 29. júní 2011 17:18