Innlent

Með e-töfluduft falið innvortis

Mynd/Pjetur
Íslensk kona á þrítugsaldri hefur verið ákærð fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnasmygls. Konunni er gefið að sök að hafa í janúar staðið að innflutningi á 144,68 grömmum af e-töfludufti ætluðu til sölu hér á landi í ágóðaskyni.

Fíkniefnin, sem unnt er að framleiða úr um 1845 e-töflur, flutti konan innvortis til Íslands. Hún kom í flugi frá Kaupmannahöfn en var handtekin við komuna til Keflavíkurflugvallar.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×