Innlent

Ók viljandi á bíl og slasaði fólk

Mynd/Haraldur
Karlmaður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir vímuefnakstur og að stofna lífi tveggja einstaklinga í hættu.

Maðurinn ók bíl inn á bílastæði við Frostafold í Reykjavík, þá undir áhrifum fíkniefna. Hann ók vísvitandi á bifreið sem stóð á planinu. Þegar hann ók á bifreiðina sat fólkið, sem hann stofnaði í hættu, á vélarhlíf hennar.

Við höggið kastaðist bifreiðin sem fólkið sat á rúmlega tvo metra áfram með þeim afleiðingum að fólkið marðist og tognaði.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×