Enski boltinn

Coutinho valinn besti Brassinn í Evrópu

Coutinho hefur verið einn besti leikmaður Liverpool á þessu tímabili
Coutinho hefur verið einn besti leikmaður Liverpool á þessu tímabili vísir/getty
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool og brasilíska landsliðsins, var í dag valinn besti brasilíski leikmaðurinn sem lék í Evrópu árið 2016.

Hinn 24 árs gamli Coutinho hefur farið á kostum með liði Liverpool á þessu ári en hann skoraði alls þrettán mörk fyrir liðið.

Hefur það leitt til þess að Coutinho hefur verið orðaður við spænska stórveldið Barcelona undanfarnar vikur.

Þá fékk hann stærra hlutverk með landsliði sínu og skoraði gegn Argentínu, Bólivíu og þrennu gegn Haítí.

Fékk Coutinho 32,13% atkvæða í kosningunni en fyrrum verðlaunahafar eru meðal annars Kaka, Neymar og Thiago Silva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×