Tónlist

Endurkoma N Sync

Hljómsveitin 'n sync
Hljómsveitin 'n sync nordicphotos/getty
Aðdáendur strákahljómsveitarinnar N Sync ættu að vera viðbúnir því það stefnir allt í það að hljómsveitin muni koma saman á ný eftir tíu ára fjarveru. Sögusagnir eru á kreiki þess efnis að kapparnir komi til með að spila á MTV Video Music Awards næstkomandi sunnudag.

Samkvæmt blaðinu The New York Post er hjartaknúsarinn Justin Timberlake nú í óða önn að undirbúa sig fyrir endurkomuna ásamt hinum meðlimum sveitarinnar, þeim JC Chasez, Lance Bass, Joey Fatone and Chris Kirkpatrick.

Tónlistarhátíðin fer fram í Brooklyn‘s Barclay‘s Center í New York og er það engin önnur en söngkonan Lady Gaga sem stígur fyrst á svið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×