Tónlist

Mömmurappið nýtur vinsælda

Sara McMahon skrifar
Atli Jasonarson skipar sveitina ásamt Andra Má Magnasyni og eru þeir báðir nýstúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Atli Jasonarson skipar sveitina ásamt Andra Má Magnasyni og eru þeir báðir nýstúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. mynd/arnþór
„Við erum tiltölulega óhefðbundnir rapparar, flestir rappa bara um djammið en við röppum um lífsreynslu okkar og viljum helst segja sögur með lögunum,“ segir Andri Már Magnason, annar tveggja meðlima rappsveitarinnar Múfasa Makeover. Sveitin hefur vakið nokkra athygli fyrir lag sitt, Mömmurapp.

Atli Jasonarson skipar sveitina ásamt Andra og eru þeir báðir nýstúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Piltarnir hafa, að eigin sögn, meira að segja gert lag með ungstirninu Justin Bieber og fjallar það um vináttu þeirra þriggja. „Lagið fjallar um hvernig við kynntumst á Vitabar og vináttu okkar,“ útskýrir Andri.

Lagið Mömmurapp hefur notið vinsælda á samskiptamiðlum á borð við Facebook, en Andri segir þá lítið pæla í auknum vinsældum sveitarinnar.

„Við fórum í viðtal á Rás 2 og eftir það fékk Atli símtal þar sem honum var sagt að Hallgrímur Helgason hafði deilt laginu á Facebook síðu sinni. Okkur fannst það mjög gaman og metum það mikils,“ segir Andri að lokum.

Múfasa Makeover kemur fram í Ráðhúsinu klukkan 14 á Menningarnótt. Hér að neðan má svo horfa á myndbandið við lagið Mömmurapp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.